Lýsing
Eldhúsið er með fallegri brúnni innréttingu, gráum borðplötum og hvítum tækjum.
Stofan er rúmgóð og björt með útgengi út á svalir til suðurs þar sem nýtur fallegs útsýnis.
Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með ljósu parketi og góðu skápaplássi.
Sérgeymsla fylgir í kjallara.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttasvæði Þórs. Gott útileiksvæði er í næsta nágrenni og bakarí, verslanir og heilsugæsla eru í næsta húsi – allt sem þarf til þægilegs daglegs lífs innan seilingar.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.