Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Vista
fjölbýlishús

Grensásvegur 1

108 Reykjavík

84.900.000 kr.

908.021 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519725

Fasteignamat

76.650.000 kr.

Brunabótamat

61.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
93,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 14. maí 2026 kl. 16:00 til 16:30

Opið hús: Grensásvegur 1, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 04 07. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 14. maí 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT  fasteignasala kynnir í einkasölu: Grensásvegur 1B, íbúð 04-07

Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð, skráð 93,5 fm, þar af geymsla 6,6 fm (fastanr. 251-9725).

Seljendur skoða skipti á ódýrari eign.

Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veita:

Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 698-6655, tölvupóstur [email protected].
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur [email protected].


Íbúðin er hluti af glæsilegu 41 íbúða fjölbýlishúsi sem hannað er af Archus og Rýma arkitektastofum, þar sem mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang, nútímalega hönnun og gæðaefni. Archus sá jafnframt um innanhúshönnun og efnisval. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Iwa og falleg innfelld LED lýsing er í eldhúsi og loftum.

Skipulag eignar
Anddyri/gangur með parketi og góðum fataskáp.
Alrými er opið og bjart með eldhúsi, stofu og borðstofu í samfelldu rými.
Stofa með útgengi á svalir sem snúa til suð-austurs með glerhandriði.
Eldhús er rúmgott með vandaðri innréttingu og eyju. Bosch tæki eru í eldhúsi, þar á meðal spanhelluborð, ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, auk Eico háfs.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi / svefnherbergi er einnig rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt upp í loft á þremur veggjum með 60x60 flísum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfhiti er í allri íbúðinni og innfelld lýsing í loftum.

Sameign & aðstaða
Geymsla í sameign
Hjólaaðstaða með stæðum fyrir allt að 400 reiðhjól

Bílastæði:
Ekki eru sérmerkt bílastæði við húsið, en 183 stæði eru í bílakjallara sem hægt er að leigja til lengri eða skemmri tíma eða nota með tímagjaldi. Aðgengi er frá Skeifu. Greiðslur fara fram í gegnum snjallforrit og í kjallaranum verða einnig hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Staðsetning
Eignin er á frábærum stað miðsvæðis í borginni, í nágrenni við Skeifuna og Laugardalinn. Stutt er í fjölbreytta þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu í Glæsibæ, Ármúla og nágrenni. Allir skólastigar eru í göngufæri og útivistarsvæði Laugardalsins með sundlaug, líkamsrækt og fallegum gönguleiðum er rétt hjá.



Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

img
Páll Þorbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
img

Páll Þorbjörnsson

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. maí. 2024
67.850.000 kr.
84.000.000 kr.
30407 m²
2.763 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone

Páll Þorbjörnsson