Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Friðrik Einar Sigþórsson
Svala Jónsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
123,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Vanabyggð 9, 600 Akureyri.
Mjög falleg og nýlega mikið endurnýjuð  fjögurra herbergja 123,2m2 efri hæð með sér inngangi í tvíbýli á Brekkunni.
Frábær staðsetning á Brekkunni miðsvæðis, stutt í grunn- og framhaldsskóla ásamt Sundlaug Akureyrar.
****  Eign sem vert er að skoða ****

Eignin skiptist í forstofu/stigauppgöngu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi og baðherbergi ásamt sér geymslu og  sér þvottahúsi í kjallara. Í kjallara er einnig sameiginleg geymsla og bakdyrainnganur í eignina.


Forstofa flísar á gólfi, skápur og falleg lýsing. Aðgangsstýring á útidyrahurð með talnalás, RFID lykli eða með appi.  Úr forstofu eru tröppur sem hafa verið steyptar upp á nýtt niður í sérþvottahús og geymslu og sameiginlegan bakdyrainngang og einnig sameiginlegt geymslurými.
Stigauppganga er með fallegum glugga við stiga sem er nýlega teppalagður.
Eldhús vinilparket á gólfi, falleg hvít innrétting með eyju með spanhelluborð með innbyggðri viftu.  Nýleg tæki í eldhúsi.
Borðstofa Vínilparket á gólfi, hurð út á svalir til suðurs.
Stofa er mjög rúmgóð og björt, hátt til lofts, vinilparket á gólfi og gluggum til tveggja átta. Innfeld lýsing í lofti.
Svefnherbergin  eru fjögur öll með vinilparketi á gólfum, nýlegir fataskápar í öllum, lýsing inní skáp í hjónaherbergi.  Öll ágætlega rúmgóð, það hefur verið útbúið rými yfir forstofu sem stækkar eitt herbergið  um 3,6m2, sem kemur mjög vel út.
Baðherbergi mjög fallegt allt endurnýjað með ljósum flísum og hvítri innréttingu. Baðkar með sturtuaðstöðu. Rafmagnshandklæðaofn.  Opnanlegur gluggi.
Þvottahús lakkað gólf aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi.
Geymsla sem er sér þar er lakkað gólf og hillur.  ( Einnig sameiginlegt geymslurými fyrir framan)
Garðskúr sem er mjög veglegur og nýlegur 11m2 að stærð full einangarður með rafmagni og rafmangsofni.  Aluzink báruþak.
Garður sem er gróinn með nýlegum skjólveggjum utan um allan garð.
Bílaplan er malbikað lýsing í vegg við bílaplan.

Annað:  
Þak nýlega endurnýjað, skipt um þakbáru, pappa og flasningar, burðarbita, borð og einangrun yfir stofu endurnýjað.  ( Steypt plata yfir allri íbúð nema stofu)
- Þakrennuhiti og stýring.
- Mjög gott Free@home hústjórnakerfi. Með miklum möguleikum  sem stýrir, ljósum,senum, gardínum og gólfhita  hægt að bæta við stórn á t.d. heitum potti, tónlist og aðgangsstýringu hurða. 
- Gólfhiti er í allri íbúð og flotað yfir . Gólfhitastýring er hluti af Free@home kerfinu.
- Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
- Fræst fyrir rafmagni í allri íbúð, bætt við rafmagnsdósum og færðar í sömu hæð.
- Ný rafmagnstafla í íbúð ásamt Free@home hússtjórnarkerfi.
- Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð árið 2023
- Dregið í nýjir vírar og raflagnaefni endurnýjað í íbúð.
- Lagt og dregin í strengur fyrir rafbíla hleðslustöð, frá töflu út í bílastæði. Tilbúið fyrir hleðslustöð
- Sér hitaveitumælir og sér rafmagnsmælir eru fyrir íbúðina.
- Eignin er í einkasölu.

img
Svala Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
FS Fasteignir ehf.
Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
FS Fasteignir ehf.

FS Fasteignir ehf.

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
phone
img

Svala Jónsdóttir

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. mar. 2014
18.400.000 kr.
25.500.000 kr.
123.2 m²
206.981 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
FS Fasteignir ehf.

FS Fasteignir ehf.

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri
phone

Svala Jónsdóttir

Glerárgötu 36 3 hæð, 600 Akureyri