Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Dan Valgarð S. Wiium
Ásta María Benónýsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hrauntunga 31

200 Kópavogur

144.900.000 kr.

676.155 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2062731

Fasteignamat

131.650.000 kr.

Brunabótamat

99.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1966
svg
214,3 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 20. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 20 MAÍ FRÁ KL. 17-17:30
Kjöreign fasteignasala kynnir Hrauntunga 31, fallegt 214,3 fm Sigvaldahús i Suðurhlíðum Kópavog
s. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Á efri hæð  hússins, sem er 122 fm, eru þrjú svefnherbergi, skifstofuherbergi,baðherbergi, eldhús, búr og stofa. Úr stofu og hjónaherbergi er útgegnt út á ca 50 fm verönd . Aðalinngangur hússins er á neðri hæð. Þar er jafnframt bílskúrinn sem er 27 fm og 65,3 fm íbúðarhluti. Þar eru tvö góð svefherbergi, salerni, geymsla og þvottahús. Innangegnt er í bíslkúrinn frá neðri hæðinni. Mikið útsýni er frá húsinu.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum.
Nánari lýsing: 
Efri hæð: gengið er upp fallegan parketlagðan stiga. Eldhús og stofa eru samliggjandi. Flísar eru gólfi í eldhúsi og góð ljós innrétting sem var endurnýjuð 2003. Hiti er í gólfi i eldhúsi. Innaf af eldhúsi er gott búr. Stofan er parketlög og stórir og bjartir gluggar. Gengið er út á stóra verönd frá stofu. Á herbergisgangi eru 3 svefnherbergi og skrifstofuuherbergi ásamt baðherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi. Útgegnt er út á verönd frá hjónaherbergi. Barnaherbegin eru tvö og er annað þeirra með fataskáp. Ágætis skrifstofuherbegi. Baðherbergið er flísalagt með sturtu/baði, opnanlegur gluggir og snyrtiaðstaða.
Neðri hæð: gengið er inn forstofu þar er gott fatahengi og flísar á gólfi. Svefnherbergin eru tvö og eru með fataskápum. Ágætis geymsla, Þvottahús með góðum innréttingum og stórri sturtu. Innangegnt er í bílskúrinn frá neðri hæð. Bílskúrinn er 27 fm og er með vatni og rafmagni. Húsið stendur á stórri hornlóð sem er í góðri rækt.

Seljandi hefur tekið saman ítarlegan lista yfir endurbætur frá 2003 tl dagsins í dag þar sem með annars kemur fram. Skipt hefur verið um rúður í felstum gluggum. Skipt úr lofthitun í ofna í öllum rýmum, nýr stigi og handrið. Rafmagn endurnýjað í eldhúsi og stofu og settir upp nýjir rafmagnstenglar og rofar frá S. Guðjónsson. Skipt um tré á girðingu 2018. Snjóbræðsla í innkeyrslu. Bílskúrsgólf og hurðaopnari endurnýjaður ásamt nýjum hurðargormum. Opnað fyrir öndun á klæðningunni á svölum hjá svefnherbergjunum og settur tjörupappi og nýtt járn neðst á klæðningunni.  2015 var settur þakpappi á húsið. 2020 í júlí var gert við gat á holræsislögn á gesta WC (lögnin fóðruð). einnig voru myndaði lagnirnar í húsinu.

Húsið er hannað og teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkítekt. Þetta er virkilega fallegt, vel skipulagt fjölskylduhús á  góðum stað, þar sem stutt er í alla þjónustu, svo sem skóla, leikskóla verslun og íþróttastarf, sem vert er að skoða.c

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða [email protected]
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 [email protected]
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 [email protected]

img
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kjöreign fasteignasala
Ármúla 21, 108 Reykjavík
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone
img

Ásta María Benónýsdóttir

Ármúla 21, 108 Reykjavík
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone

Ásta María Benónýsdóttir

Ármúla 21, 108 Reykjavík