Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Ögurás 3 íb203

210 Garðabær

107.900.000 kr.

954.023 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2244529

Fasteignamat

88.700.000 kr.

Brunabótamat

60.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2000
svg
113,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 21. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Ögurás 3 íb203, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Háborg fasteignasala og Jórunn, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti í einkasölu stórglæsilega 113,1 fm fjögurra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi við Ögurás 3 í Garðabæ.

Hér er um að ræða sérlega bjarta, vandaða og smekklega endurnýjað íbúð á 2. hæð (efstu hæð). Íbúðin er einstök einkum vegna mikillar lofthæðar í stofu, sem ásamt stórum hornglugga og útgengi á suðvestursvalir skapar einkar bjart og opið alrými með miklu rúmmáli.

Úr stofunni blasir við dásamlegt útsýni vestur yfir sundin, þar sem sjá má Bessastaði, Gálgahraun, Akrafjall og Snæfellsjökul í fjarska. Á svölunum má svo njóta þess þegar kvöldsólin dansar við sjóndeildarhringinn.

Ásahverfið er rótgróið og eftirsótt hverfi og Ögurás stendur efst á holtinu við opið grænt svæði með göngustígum, leikskóla, leikvelli og sparkvelli. Einnig er grunnskóli í göngufæri.

Lykilupplýsingar
·       Stærð: 113,1 fm
·       Herbergi: 4 (3 svefnherbergi + stofa)
·       Hæð: 2. hæð til vinstri (efsta hæð)
·       Sérinngangur: Já, af stigapalli
·       Byggingarár: 2000

Lýsing eignarinnar
Komið inn í íbúðina
Gengið er upp eina hæð á veglegan yfirbyggðan stigapall með háu og reisulegu þaki yfir stærstum hluta stigans. Sérinngangur er af stigapalli. Forstofan tekur vel á móti með góðum fataskápum og þaðan er gengið inn í alrýmið.

Alrými, eldhús og stofur
Alrýmið er einstaklega glæsilegt með hallandi lofti og hámarkslofthæð sem nær allt að 4,16 metrum undir mæni, sem gefur rýminu mikla vídd og birtu. Harðparket er á öllum gólfum og flísar á votrýmum, en gólfefni íbúðarinnar voru endurnýjuð árið 2020.

Eldhúsið var endurnýjað árið 2020 eftir hönnun Bryndísar Evu Jónsdóttur. Veggur milli eldhúss og stofu var fjarlægður og sett upp ný innrétting með eyju, klæddri steini á borðplötu og hlið. Hægt er að sitja við eyjuna. Tæki eru vönduð, þar á meðal spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi.

Stofan er björt og rúmgóð, með stórum hornglugga sem hleypir inn mikilli dagsbirtu. Útgengt er á suðvestursvalir með síðdegis- og kvöldsól, þar sem njóta má áðurnefnds útsýnis yfir sundin og Snæfellsjökul.

Svefnherbergi og baðherbergi:
Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla liggja saman á gangi.
·       Hjónaherbergi: 15,9 fm með góðum fataskápum
·       Barnaherbergi 1: 9,3 fm, bjart og rúmgott með skápum
·       Barnaherbergi 2: 8,3 fm, bjart og rúmgott með skápum

Baðherbergið var endurnýjað að hluta árið 2020 á smekklegan máta þar sem meðal annars voru settar nýjar flísar á golf og gólfhiti lagður. Einnig var sett vönduð innrétting með glerborðplötu og handlaug og spegli með hliðarlýsingu. Inn af baðherberginu er þvottahús með innréttingu og góðri vinnuaðstöðu, sem einnig var endurnýjuð árið 2020 og sett upp rennihurð með spegli á milli rýma. Árið 2026 var sett nýtt blöndunartæki í bað og sturtu.

Framkvæmdir og endurbætur 
Innan íbúðar
:
·       2020: Þak yfirfarið, málað og þakkantur lagfærður
·       2020: Harðparket lagt á öll gólf
·       2020: Nýr skápur í forstofu
·       2020: Eldhús opnað (veggur tekinn niður) og endurinnréttað eftir hönnun Bryndísar Evu Jónsdóttur (steinn á borðum, eyja og vönduð tæki).
·       2020: Þvottahús endurnýjað með nýrri innréttingu
·       2020: Gólfhiti á baði og nýjar flísar á gólfi
·       2021: Hurðir frá Agli Árnasyni með innfelldum listum endurnýjaðar og rennihurð á baði með spegli sett upp.
·       2022: Skipt um rafmagnstengla og -ramma innan íbúðar.
·       2025: Opnanleg fög og rúður þeirra endurnýjaðar í íbúðinni. Botnstykki glugga í svefnherbergi lagfært. Þéttikantar hurða og glugga, læsingar                        og lamir yfirfarðar. Fúgað og þétt á milli steins og timburs þar sem þurfti.
·       2026: Ný blöndunartæki sett í bað og sturtu.

Hús og sameign:
·       2020: Þak yfirfarið, málað og þakkantur lagfærður.
·       2024: Fjórar rafhleðslustöðvar settar á sameiginlega lóð.
·       2026: Samþykkt að fjölga rafhleðslustöðvum í fimm talsins.

Geymslur og sameign:
·       Geymsla innan íbúðar: Já, með hillum. Mögulegt er að nýta rýmið sem fataherbergi.
·       Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á lóð.
·       Sameiginleg geymsla á hæð fyrir áhöld.

Bílastæði:
Malbikuð sameiginleg bílastæði á lóð. Á sameiginlegri lóð eru fjórar rafhleðslustöðvar fyrir bíla, og samþykkt var á aðalfundi húsfélagsins 9. febrúar 2026 að bæta við einni hleðslustöð til viðbótar. Snjóbræðsla er í stétt á bílaplani.

Húsið og lóðin:
Húsið er hannað af Bjarna Snæbjörnssyni og er tveggja hæða staðsteypt íbúðarhús, steinað að utan. Loftplata efri hæðar er steinsteypt nema yfir stofum, þar sem eru niðurklædd hallandi loft. Þak er klætt bárujárni.

Húsið að Ögurási 1–7 hýsir alls 16 íbúðir. Inngangur hverrar íbúðar er beint að utan, sem tryggir meira næði.

Lóðin er vel frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús (með snjóbræðslu), tyrfðum flötum og fallegum trjágróðri.

Húsfélag og rekstrarkostnaður:
Í húsinu starfar virkt húsfélag, Ögurás 1-7, húsfélag, í umsjón Eignaumsjónar hf. Hússjóður íbúðarinnar er í skilum samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dags. 13.05.2026. Mánaðarleg gjöld eignarinnar eru samtals á mánuði 43.981 kr, þar af framkvæmdasjóður kr. 18.575-. Virkt húsfélag er starfandi með traustri fjárhagsstöðu. Á aðalfundi 2026 var samþykkt að bæta vi einni rafhleðslustöð. Stjórn var falið að skoða hvort að tími sé kominn að sílabera húsið og hreinsa loftstokka. Stjórn ætlar að fá tilboð í lagfæringar á grasflöt sunnan megin við húsið.

Hverfið:
Sérlega vel hefur tekist til með skipulag Ásahverfis. Kerfi göngustíga um hraun og græn svæði liðast um hverfið og tengist friðlandinu í Gálgahrauni. Stutt er í glæsilega göngustíga meðfram strandlengjunni í Sjálandshverfi.
Á grænu svæði fyrir aftan húsið eru göngu- og hjólastígar, leikskóli, leikvöllur, sparkvöllur og fallegt útivistarsvæði. Grunnskóli er í göngufæri.

Samantekt:
Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og fallega endurnýjaða íbúð á efstu hæð með stórkostlegu útsýni. Mikil lofthæð, vandaðar endurbætur og eftirsótt staðsetning í Ásahverfi gera þessa eign að sérlega spennandi kosti.

Frekari upplýsingar:
Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn, löggiltur fasteignasali, í síma 845-8958 eða á [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 



 

img
Jórunn Skúladóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. maí. 2022
57.500.000 kr.
87.900.000 kr.
113.1 m²
777.188 kr.
2. des. 2019
46.450.000 kr.
57.200.000 kr.
113.1 m²
505.747 kr.
20. júl. 2007
25.090.000 kr.
31.500.000 kr.
113.1 m²
278.515 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík