Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Víðimelur 32 - íbúð 201

107 Reykjavík

99.900.000 kr.

729.730 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2026957

Fasteignamat

101.950.000 kr.

Brunabótamat

58.370.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1939
svg
136,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgóð og björt þriggja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í mikið endurnýjuðu húsi við Víðimel 32 í Vesturbænum. Íbúðin er skráð 72,6 fm en íbúðinni fylgir bílskúr og bakhús. Samtals 136,9 fm. Bæði rými hafa verið innréttuð sem íbúðarrými sem býður upp á góða tekjumöguleika. Húsið hefur fengið mikið og gott viðhald en meðal annars hefur húsið verið endursteinað og skipt um alla glugga. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og tómstundir. 

**Sækja söluyfirlit**


Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlega inngang með neðri hæð. Fallegur og bjartur stigi liggur upp á efri hæð. Út frá stigapalli efri hæðar eru sameiginlegar svalir.
Forstofa/hol: Parketlagt með fatahengi. 
Eldhús: Parketlagt með fallegri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn. Eldhús var gert upp fyrir ca. 5 árum.
Stofu: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og frábæru útsýni. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gófli og góðum fataskáp.
Herbergi: Rúmgott með parketi á gólfi. Tengist stofu með rennihurð og gæti hæglega einnig nýst sem borðstofa.
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Góður, opnanlegur gluggi. Baðherbergi var gert upp fyrir ca. 5 árum.

Bílskúr – 25,9 fm
Bílskúrinn hefur verið endurbættur og innréttaður sem stúdíóíbúð. Þar er alrými með parketi og eldhúsaðstöðu, auk baðherbergis með sturtu. Bílastæði framan við bílskúr fylgir íbúðinni. Snjóbræðslukerfi er undir bílaplani.

Bakhús – 38,4 fm
Mannvirki á baklóð hefur einnig verið innréttað sem íbúðarrými. Þar er gólfhiti. Rýmið skiptist í alrými með flísum og eldhúsinnréttingu, baðherbergi með sturtu og sér svefnherbergi.

Framkvæmdir og viðhald:
Til viðbótar því að húsið var endursteinað, gluggar endurnýjaðir og ný stétt sett í kringum húsið þá var á árunum 2024-2025 gerðar endurbætur á frárennsliskerfi og sett snjóbræðslukerfi.  Nýja frárennsliskerfið þjónar öllu húsinu að undanskildu salerni og eldhúsi í kjallara. Lagnaaðstaða er þó til staðar fyrir tengingu þess við nýja kerfið. Endurnýjað frárennsliskerfi nær út í gangstétt.  Auk þess voru gerðar endurbætur á efri tveimur hæðum, nýjar hitalagnir lagðar í kjallara og efri hæð árið 2020. Hitalagnir í lagnarými í kjallara voru endurnýjaðar og komið fyrir varmaskiptakerfi fyrir heitt neysluvatn á öllum hæðum og útirýmum.

Frábær staðsetning í Vesturbænum við fallega götu þar sem stutt er í þjónustu, skóla og útivist. M.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Háskóla Íslands og Háskólabíó. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. jan. 2016
40.150.000 kr.
64.250.000 kr.
193.2 m²
332.557 kr.
23. feb. 2007
23.770.000 kr.
27.500.000 kr.
137.4 m²
200.146 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík