Lýsing
Um er að ræða fallega eign sem snýr öll til suðurs að grónum bakgarði hússins. Íbúðin skiptist í anddyri/gang, alrými með eldhúsi og stofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og garðskála með útgengi út í garð.
Nánari lýsing:
Anddyri / gangur: Harðparket á gólfi og tvöfaldur fataskápur. Inngangur frá sameign en einnig er hægt að nota útgengi frá garði sem sérinngang.
Eldhús: Rúmgóð Ikea eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Keramik vaskur, Gorenje helluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa / alrými: Bjart og opið rými með góðri tengingu milli stofu, borðstofu og eldhúss. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott herbergi með tvöföldum fataskáp. Rennihurð er á milli herbergis og alrýmis.
Garðskáli: Gengið er úr svefnherbergi í garðskála með flísum á gólfi og þaðan út í bakgarð. Hægt er að nota þann inngang sem aðalinngang í íbúðarinnar.
Baðherbergi (endurnýjað 2022): Flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, innrétting við vask með speglaskáp og sturta.
Annað:
- Sérgeymsla í sameign
- Sameiginlegt þvottahús
- Gróinn bakgarður með hellulagðri stétt
- Dýrahald heimilt
- Íbúðin snýr öll í suður að garði
Staðsetning:
Frábær staðsetning í Hlíðunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og útivistarsvæði. Öskjuhlíð, miðbær Reykjavíkur og Háskólasvæðið eru í stuttu göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður