Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 66,1 m2, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af opnum svalagangi á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi við Klapparhlíð 32 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Eignin skiptist í svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu. Sérgeymsla á hæðinni. Næg bílastæði. Frábær staðsetning. Stutt í skóla, leikskóla, sund og líkamsræktarstöð. Eignin er skráð 66,1 m2, þar af íbúð 59,4 m2 og geymsla 6,7 m2.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa og eldhús: er í sameiginlegu rými með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er L-laga innrétting með ísskáp, uppþvottavél, ofni, helluborði og viftu. Úr rýminu er gengið út á svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Svefnherbergið er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Gangur er með harðparketi á gólfi
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, handklæðaofni vegghengdu salerni og baðkari.
Þvottahús er inn af baðherbergi og er með hillum og flísum á gólfi.
Geymsla er í sameign á hæðinni skráð 6,7 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Verð kr. 62.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.