Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
raðhús

Birkimörk 10

810 Hveragerði

87.500.000 kr.

565.245 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2282858

Fasteignamat

91.250.000 kr.

Brunabótamat

75.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
154,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valborg fasteignasla kynnir í einkasölu Birkimörk 10, 810 Hveragerði.
Fallegt fjölskylduhús með skjólgóðum palli og heitum potti.
Eignin er samtals 154,8 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, salerni, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Vel skipulagt og fallegt fjölskylduhús við rólega botnlangagötu, skjólgóður garður og aflokaður pallur með heitum potti.
ATH myndir af eigninn koma inn eftir helgina.
Fasteignamat eignarinnar er 91.250.000kr.-


Nánari lýsing;
Komið er inní forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Innaf forstofu er rúmgott hjónaherbergi á hægri hönd og bílskúr á vinsti hönd.
Eldhúsið er opið inní stofu og borðstofu. Gott skápapláss í eldhúsi og þar er eyja. Bakarofn í vinnuhæð, gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Stofan er björt og rúmgóð með innfelldri lýsingu. Búið er að gera auka herbergi þar sem áður var sjónvarpsherbergi. Falleg glerhurð aðskilur stofu og herbergi.
Tvö barnaherbergi eru í eigninni en þar er parket á gólfi.
Baðherbergið er nýlega uppgert. Falleg innrétting með handlaug og skúffum, "walk-in" sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Baðherbergið er  flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús með nýlegri innréttingu en þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og gott skúffu og skápapláss.
Innaf forstofu er gengið í bílskúrinn sem er flísalagður.
Bílskúr hefur undanfarið verið nýttur sem vinnuherbergi en þar er einnig geymsluherbergi og gott geymsluloft.
Gólfhiti í öllu húsinu, fallegt parket á alrými og herbergjum.
Aðkoma að húsinu er mjög góð í rólegum botnlanga með hellulögðu bílaplani með snjóbræðslu fyrir framan bílskúr og inngang. Skjólgóður garður og fallegur pallur að aftanverðu. Þar er heitur pottur en pallurinn snýr til suðurs.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. júl. 2020
48.900.000 kr.
50.000.000 kr.
154.8 m²
322.997 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone