Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Garðatorg 2B

210 Garðabær

154.900.000 kr.

1.118.412 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2353656

Fasteignamat

121.550.000 kr.

Brunabótamat

84.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
138,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, vandaða og vel skipulagða 3ja - 4ra herbergja 138,5 fermetra íbúð með tveimur baðherbergjum, yfirbyggðum suðursvölum og stórkostlegu útsýni á 4. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Garðatorg í Garðabæ.  Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir með íbúðinni. 

Eignin er afar vel staðsett við Garðatorg í Garðabæ þar sem öll þjónusta er í göngufæri.

- Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi innaf
- Stórir gluggar aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum.
- Nátturusteinn er á borðum innréttinga
-Sjónvarpsholi má breyta í svefnherbergi nr 3
- Yfirbyggðar opnanlegar svalir til suðurs og vesturs með viðarklæddu gólfi
- Tvær lyftur eru í húsinu


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og með fataskápum.
Baðherbergi I, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, speglaskápar með lýsingu í, vegghengt wc., handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf, innrétting og vinnuborð með vaski. 
Stofa, stór, björt og parketlögð með einstöku útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli, Reykjanesi, Esju og víðar.  Úr stofu er útgengi á yfirbyggðar opnanlegar svalir til suðurs og vesturs með viðarklæddu gólfi.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með mjög fallegum svartbæsuðum eikarinnréttingum og eyju með graníti á borðum. Innbyggð uppþvottavél er í innréttingu og í eyju eru spanhelluborð með hangandi háfi yfir. Áföst borðaðstaða er á eyju.
Sjónvarpshol, parketlagt og mögulegt að breyta því í 3. svefnherbergi íbúðarinnar.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott.
Fataherbergi, innaf hjónaherbergi, er parketlagt og með innréttingum á tveimur veggjum.
Baðherbergi, innaf hjónaherbergi. Flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, speglaskápar með lýsingu í, vegghengt wc., handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, sem er 9,1 fermetri að stærð, með glugga og lökkuðu gólfi. 
Sameiginleg hjólageymsla.

Húsið að utan lítur vel út, er klætt með áli og því viðhaldslétt. 
Sameign er öll virkilega snyrtileg og vel umgengin.

Staðsetning eignarinnar er góð á eftirsóttum stað við Garðatorg í Garðabæ þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, Sundlaug Garðabæjar, skóla, íþróttasvæði Stjörnunnar o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. mar. 2017
6.310.000 kr.
74.900.000 kr.
138.5 m²
540.794 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone