Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Asparskógar 11

300 Akranes

52.900.000 kr.

796.687 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2514102

Fasteignamat

49.550.000 kr.

Brunabótamat

35.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
66,4 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

*** Asparskógar 11 - 300 Akranes ***   

- LAUS VIÐ KAUPSAMNING -
 
PRIMA fasteignasala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna:
Snyrtileg 66,4 fm, tveggja herbergja endaíbúð á jarðhæð, með sér inngangi og sérafnotareit til suðurs. Eignin skiptist í anddyri, gang sem tengir rými eignar, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT
 
Nánari lýsing:
Anddyri er flísalagt og með góðu skápaplássi.
Hol flæðandi parket og gott skápapláss.
Eldhús er með fallegri HTH innréttingu, hvítir neðri skápar og dökkir fyrir ofan og dökk borðplata. 
Baðherbergi er með dökkri innéttingu og efri speglaskáp, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Stofan er rúmgóð með útgengi á sérafnotareit til suðurs.
Sameiginleg hjólageymsla er í sameign.

Um er aö ræða virkilega fallega og vel skipulagða íbúð á Akranesi. Stutt í leikskóla, golfvöll, og skógræktina.

Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / [email protected]


__________________________________________________________________________________________


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. ágú. 2025
45.500.000 kr.
45.500.000 kr.
10101 m²
4.505 kr.
25. apr. 2022
13.450.000 kr.
36.200.000 kr.
66.4 m²
545.181 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6