Opið hús: Hallgerðargata 5 (305), 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 05. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 20. maí 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Kirkjusandur er endurbyggður borgarhluti við sjávarsíðuna þar sem ný kennileiti Reykjavíkur munu rísa og klára uppbyggingu strandlínu höfuðborgarinnar. Hverfið við Kirkjusand verður blönduð byggð íbúða-, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis og rís það nú á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins, samtengt viðskiptahverfinu í Borgartúni og sjónrænni tenginu við miðbæinn og höfnina. Sannkallað miðborgarhverfi.
Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar.
Útsýni er til vesturs yfir sundin blá.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigahúsum og verður eitt vandaðasta íbúðarhúsið í hverfinu. Innréttingar og tæki af viðurkenndum og vönduðum gerðum.
Gólfhitakerfi er í íbúðinni og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið.
Eign í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.