Lýsing
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja 97.5 fm íbúð á þriðju hæð á þessum vinsæla stað í Vesturbænum.
Tvennar svalir eru með íbúðinni og er fallegt útsýni af báðum svölum.
Aukin lofthæð er í stofurými og gluggar á tvo vegu.
ÍBÚÐ SEM AÐ BÝÐUR UPPÁ MIKLA MÖGULEIKA OG GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er merkt 01-03-01 og skráð 97.5 fm að stærð, geymsla er í kjallara sem að tilheyrir íbúð.
Nánari upplýsingar um eign:
Davíð Matthíasson lögg.fasteignasali s. 898-1713 eða [email protected]
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Sameiginlegur inngangur er með íbúð á neðri hæð, stigapallur með góðum fataskáp framan við inngang í íbúð.
Forstofa/hol, stofa, borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi (voru þrjú áður), baðherbergi og sérgeymsla í kjallara.
Sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara auk sameiginlegrar útigeymslu.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í teppalagt stigahús en sameiginlegur inngangur er með íbúð á 2.hæð.
Forstofupallur með nokkuð góðum fataskáp, af forstupalli er hurð inn í herbergi og inn í forstofu íbúðar.
Forstofa/hol sem að er í raun miðrými hæðar og úr því er gengið í önnur rými hæðar.
Stofa og borðstofa er opið og bjart rými með aukinni lofthæð og gluggum á tvo vegu, útgengt er á rúmgóðar svalir til suð-austurs úr stofu.
Eldhús er nokkuð rúmgott með heillegri eldri innréttingu, efri og neðri skápar, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, ágætis borðkrókur.
Tvö svefnherbergi eru á hæð en voru þrjú áður og auðvelt væri að breyta því aftur, útgengt á vestur svalir úr hjónaherbergi sem er með góðum fataskápum og gluggar á tvo vegu.
Baðherbergi er með sturtuklefa, skolvask og þá er tengi fyrir þvottavél á baðherbergi og skápur.
Í kjallara er ágætis geymsla og geymsluskápur þar við hlið.
Sameiginlegt þvottaherbergi í kjallara þar sem að hver er með sýna þvottavél og svo er sameiginleg útigeymsla undir tröppum.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat