Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ásdís Ósk Valsdóttir
Guðbrandur Jónasson
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir
Böðvar Reynisson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Jóhanna K. Gustavsdóttir
Pétur Ísfeld Jónsson
Anna Laufey Sigurðardóttir
Vista
svg

40

svg

32  Skoðendur

svg

Skráð  18. maí. 2026

fjölbýlishús

Edenmörk 5

810 Hveragerði

58.400.000 kr.

730.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2514051

Fasteignamat

57.850.000 kr.

Brunabótamat

53.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
80 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Garður
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
Opið hús: 21. maí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

*** SÖLUSÝNING: EDENMÖRK 5 ÍBÚÐ 302, FIMMTUDAGINN 21. MAÍ 2026 KL 17:00-17:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: [email protected] ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Edenmörk 5 Íbúð 302.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.


Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna Edinmörk 5. Björt og falleg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu og sérinngangi af svölum. Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Hveragerði og stutt í alla þjónustu svo sem skóla, verslanir, sundlaug, gönguleiðir, golfvöll, veitingastaði og aðra afreyingu.

Eignin skiptist í forstofu, alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, 2x svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu í sameign.


Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: [email protected]


Forstofa er opin inn að alrými, flísar á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi I er á vinstri hönd frá forstofu, rúmgott og bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Alrými sem samanstendur af stofu, eldhúsi og borðstofu er rúmgott og bjart með parketi á gólfi, stórum og góðum útsýnisgluggum og gengt út á rúmgóðar svalir.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggðum ofni, helluborði og gufugleypi og tengi fyrir uppþvottavél. Raftenglar eru í vegg á milli innréttinga.
Svefnherbergi II / Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskáp yfir innréttingu. Raftenglar á milli efri og neðri skápa. Tengi er fyrir þvottavél, og sturturýmið er flísalagt í hólf og gólf.
Sérgeymsla er í kjallara 5,6m²
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.


Upplýsingar úr eignaskiptayfirlýsingu eignarinnar:


Eign 0302
Edenmörk 5, 3.hæð
Fasteignanúmer F2514051
Eignin er íbúð á 3.hæð hússins 03.02
birt stærð 74,4m² auk geymslu í kjallara 00.09 5,6m² ásamt svölum 03.06 12,9m².
Þá tilheyrir eigninni hlutdeild í sameign allra samkvæmt hlutfallstölu hennar í mhl.01.
Birt stærð séreignar er 80,0m², og brúttó rúmmál 303,0m³
Hlutfallstala í mhl.01 og lóð er 13,50%
Hlutfallstala í hitakostnaði er 13,20%


Matshluti 01. Gerð húss og skipting.
Húsið er þriggja hæða fjölbýli og telst til matshluta 01 á lóð. Í húsinu er níu íbúðir, þrjár á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með málm- og timburklæðningu. Íbuðir 1.hæðar eru með sérafnotareiti eins og merktir eru á teikningum. Lyfta er í húsinu sem tengir kjallar og hæðirnar þrjár. Birt flatarmál hússins er 720,0m² og brúttórúmmál þess er 2.546,7m³ með botnplötu. Sameign allra í matshluta 01 İ sameign allra í kjallarra eru tæknirými (rými 00.10), gangar (rými 00.11), hjóla- og vagnageymsla (rými 00.11), brunastúka (rými 00.12), lyfta (rými 00.13), tæknirými (rými 00.14) og útitröppur (rými 00.15). Á 1.hæð eru lyfta (rými 01.04), og skyggni (rými 0105). Á 2.hæð eru lyfta (rými 02.04), og gangnasvalir/útitröppur (rými 02.08). A 3.hæð eru lyfta (rými 03.04), og gangnasvalir/útitröppur (rými 03.08).


Fylgdu Húsaskjóli á TikTok


Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði


Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. júl. 2024
50.450.000 kr.
54.400.000 kr.
10302 m²
5.281 kr.
30. des. 2021
2.070.000 kr.
48.500.000 kr.
80 m²
606.250 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Húsaskjól fasteignasala

Húsaskjól fasteignasala

Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur