Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Vista
hæð

Suðurgata 24

230 Reykjanesbær

73.900.000 kr.

439.097 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2090707

Fasteignamat

62.500.000 kr.

Brunabótamat

89.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
168,3 m²
svg
7 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 4. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Suðurgata 24, 230 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 4. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT  fasteignasala kynnir í einkasölu – Suðurgata 24, Reykjanesbæ. Um er að ræða fallega og rúmgóða eign í þríbýlishúsi, staðsett í hjarta Keflavíkur. Eignin er á efstu hæð með sérinngangi og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a. góða útleigumöguleika. Eignin er skráð samtals 168,3 fm, þar af er íbúð 132,5 fm og bílskúr 35,8 fm. Húsið er steypt, byggt árið 1956 og hefur fengið reglubundið viðhald.

Allar nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson lgf i síma 560-5501 og á netfanginu [email protected]

Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar fasteignasala í síma 772-7930 og á netfanginu [email protected]

*** Sérinngangur, 
*** 4 svefnherbergi í aðal íbúð, Fataherbergi inn af hjónaherbergi.
*** Stúdíóíbúð í bílskúr (ósamþykkt). Góðir útleigumöguleikar.
*** Eldhús og baðherbergi nýla endurnýjað. Suðursvalir. 
*** Gott geymslupláss í risi
*** Þak var endurnýjað að hluta árið 2005
*** Raflagnir voru endurnýjaðar að hluta árið 2006


Skipulag eignar:
Gengið er upp steyptar tröppur að sérinngangi. Við tekur stigagangur með steinteppi og fallegu járnhandriði sem leiðir upp í íbúðina.
Forstofa / gangur, með aðstöðu fyrir fatahengi á palli
Alrými – stofa, borðstofa, eldhús. Bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir. 
Eldhús: Nýlega endurnýjað með fallegri innréttingu þar sem viður og hvítur litur fara vel saman. Granít borðplötur, eyja með helluborði, bakaraofn í vegg, djúpur vaskur og innbyggð uppþvottavél og ískáp. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi og nýlegu fataherbergi inn af.
Svefnherbergi: Þrjú barnaherbergi, öll parketlögð, fataskápar í einu þeirra.
Baðherbergi: Stórt og smekklega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Ris: Gott geymslupláss með niðurdraganlegum stiga.

Bílskúr: Rúmgóður bílskúr þar sem útbúin hefur verið stúdíóíbúð (ósamþykkt) með nýlegum gólfefnum og innréttingum.
Þvottaaðstaða: Þvottavél og þurrkari á baðherbergi, auk sameiginlegs þvottahúss í kjallara.
Kjallari: Sameiginlegt þvottahús. Eignaskiptayfirlýsing er til frá 1999.

Lóð: Gróin og tyrfð. Bílastæði er fyrir framan bílskúr.
Staðsetning: Eignin er staðsett miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, sjúkrahús, skóla, verslanir og afþreyingu.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

img
Páll Þorbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
img

Páll Þorbjörnsson

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. mar. 2021
35.150.000 kr.
43.500.000 kr.
168.3 m²
258.467 kr.
3. apr. 2019
35.650.000 kr.
41.000.000 kr.
168.3 m²
243.613 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone

Páll Þorbjörnsson