Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Eskihlíð 29

105 Reykjavík

92.900.000 kr.

941.236 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2030512

Fasteignamat

81.650.000 kr.

Brunabótamat

56.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
98,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 26. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Lýsing

NADIA KATRÍN OG DOMUSNOVA KYNNA: OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 26.MAI KL.17.30-18.00. 98.7FM HÆÐ, ÞAR AF 4.1FM SÉR GEYMSLA MEÐ ÞREMUR SVEFNHERBERGJUM OG SUÐUR SVÖLUM Í MIKIÐ ENDURNÝJUÐU HÚSI Í HLÍÐUNUM. 

Lýsing eignar:
Komið er inn í snyrtilegan inngang, sameiginlegan með risíbúð. Á stigapalli  eru tvö lítil geymslurými. Gengið er beint inn í rúmgott hol með innbyggðum skápum. Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými og er útgengi út á svalir til suðurs úr stofu. Einstaklega fallegir franskir gluggar prýða stofuna  og eldhúsið. Í eldhúsi er snyrtileg eikarinnrétting með eldunareyju og gashelluborði. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Annað barnaherbergið er með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt með baðkari með sturtu, eikarinnréttingu og upphengdu salerni. Inn af holi er lítið rými með gluggum með opnanlegu fagi. Í dag er herbergið notað sem geymsla, en gæti einnig nýst vel sem vinnuaðstaða. Sérgeymsla fylgir eigninni í sameign hússins og er hver íbúð með séraðstöðu í þvottahúsi. Stór og skjólgóður garður umlykur húsið og hefur verið lögð mikil vinna í endurnýjun og viðhald beða sem gera garðinn að sannkallaðri prýði á sumrin og dásamlegan til útiveru.
Ekki missa af þessum mola.

Endurbætur:
2008-2009 : drenað og nýjar lagnir lagðar frá stömmum og út í brunn. 
2016 : skipt um þakpappa og þakjárn. Nýr þakkantur steyptur og rennur endurnýjaðar. 
2017 : Gluggar í stofu og borðstofu endurnýjaðir.
2020 : Húsið múrviðgert og endursteinað.  Tröppur og handrið steypt upp á nýtt. Skipt var um alla glugga í húsinu nema þá sem voru endurnýjaðir 2017 og glugga íbúðar til norðurs. 
2023 : Nýjar hellur lagðar í kringum húsið með snjóbræðslukerfi. Komið upp steyptum sorptunnuskýlum fyrir sex tunnur. 
Lagðar raflagnir út að bílastæði fyrir mögulega tengingu rafhleðslustöðva fyrir rafbíla.


Nánari upplýsingar veita:
Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.692 5002 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    15. maí. 2018
    42.550.000 kr.
    50.900.000 kr.
    98.7 m²
    515.704 kr.
    14. jan. 2015
    29.950.000 kr.
    33.700.000 kr.
    98.7 m²
    341.439 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone