Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
einbýlishús

Túngata 5

820 Eyrarbakki

78.900.000 kr.

437.604 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2200251

Fasteignamat

75.350.000 kr.

Brunabótamat

89.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
180,3 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu fimm herbergja einbýlishús við Túngötu 5 á Eyrarbakka.  Húsið er á einni hæð, 133,1 fm, og þar við bætist sérstæður bílskúr 47,2 fm, samtals 180,3 fm.  Húsið er byggt árið 1992 úr timbri, klætt með standandi bárujárni og á þaki er einnig járnbára.  Húsið stendur á 891 fm lóð og er miðsvæðis á Eyrarbakka.  Sólpallur með skjólvegg og heitum potti er við húsið og bílaplan er mjög stórt með drenmöl í.    

Flísalögð rúmgóð forstofa með fatahengi.  Miðrými/gangur með plastparketi og panel í lofti, gengt útí garð á nýlegan sólpall með skjólgirðingu og heitum potti. Stofan er rúmgóð  með uppteknu lofti. Í eldhúsi er fín upprunaleg innrétting, flísar á milli skápa og á gólfi. Gott flísalagt þvottahús og pallur undir þvottavél og þurrkara, einnig vinnuborð. Herbergin eru fjögur, hjónaherbergið með góðu skápaplássi.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, baðkar og sturtuklefi og stór innrétting kringum handlaug með miklu skápaplássi. Að utan er húsið klætt með standandi bárujárnsklæðningu með innbrenndum lit, einnig bárujárn á þaki, gluggar og hurðir úr tré.  Rúmgóður bílskúr og í honum er steypt gólf, skolvaskur og fjarstýrðar innkeyrsludyr.  Garðurinn er stór, afgirtur, geymsluhús og bílaplan malarborið.  Bílskúrinn er eitthvað stærri heldur en hann er skráður.

Hlýlegt einbýlishús í grónu og rólegu hverfi á Eyrarbakka. 

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected] 
Hringið og bókið skoðun.


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. jan. 2020
37.850.000 kr.
37.000.000 kr.
180.3 m²
205.214 kr.
22. apr. 2016
25.350.000 kr.
31.000.000 kr.
180.3 m²
171.936 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum