Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1960
69,3 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Nesgata 25, neðri hæð – Neskaupstaður
Domus fasteignasala kynnir bjarta, fallega og nýlega uppgerða þriggja herbergja útsýnisíbúð á jarðhæð í bárujárnsklæddu tvíbýlishúsi við Nesgötu 25 í Neskaupstað.
Um er að ræða einstaklega vel staðsetta íbúð þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Íbúðin er í aðeins um einnar mínútu göngufæri frá sjúkrahúsi, grunnskóla og leikskóla, auk þess sem stutt er í Verkmenntaskólann og aðra þjónustu bæjarins.
Íbúðin hefur verið mjög mikið uppgerð á síðustu árum og ber þess glöggt merki að vel hefur verið að framkvæmdum staðið. Meðal endurbóta má nefna að drenað hefur verið í kringum allt húsið, skolplagnir hafa verið endurnýjaðar, vatnslagnir innan íbúðar eru nýjar ásamt vatnsinntaki. Þá hafa ofnar og ofnalagnir verið endurnýjaðar. Gólfefni, innihurðir, útihurð, innréttingar, heimilistæki og annað innandyra er nánast nýtt. Aðgengi að húsinu hefur verið lagað og þak hússins endurnýjað, auk þess sem snjógildur hafa verið settar á þakið.
Komið er inn í íbúðina í litla forstofu þar sem hiti er í gólfi. Á vinstri hönd er svefnherbergi. Af gangi er gengið inn í bjarta stofu og eldhús. Úr stofunni er fallegt útsýni til suðurs og vesturs og úr eldhúsi er einnig gott útsýni til suðurs. Baðherbergi er með hita í gólfi. Annað svefnherbergi er í suðausturhorni íbúðarinnar og þaðan nýtur einnig einstaklega fallegs útsýnis til suðurs.
Sér sólpallur fylgir íbúðinni og hefur hann verið byggður eftir að eldri myndir af sameign voru teknar. Einnig hefur verið reistur geymsluskúr, íbúðin máluð að innan og unnið hefur verið að lagfæringum og fegrun á garði. Lóðin er falleg og með miklu útsýni.
Á pallinum er glæsilegur nuddpottur sem getur fylgt með í kaupunum. Um er að ræða 5 manna, 40 stúta rafmagnsnuddpott með legubekk og kapteinasæti. Potturinn er klórpottur og geta aukasíur og fylgihlutir einnig fylgt með.
Þvottahús, sem jafnframt nýtist sem geymsla, er í sameign með efri hæð. Þar sem þvottahús er einnig innan efri eignar nýtir sú íbúð sameiginlega rýmið aðallega sem geymslu.
Nesgata 25 er frábær kostur fyrir þá sem leita að fallegri, mikið endurnýjaðri og vel staðsettri íbúð með sérinngangi, útsýni, sólpalli og góðu útisvæði á rólegum og fjölskylduvænum stað í Neskaupstað.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected]
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. ágú. 2020
13.150.000 kr.
18.000.000 kr.
69.3 m²
259.740 kr.
6. maí. 2019
12.100.000 kr.
5.925.000 kr.
69.3 m²
85.498 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026