Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1969
80,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Eyjabakki 12, 109 Reykjavík – vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu þriggja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðin er skráð 80,5 m², þar af er sérgeymsla 7,7 m². Sameign er afar snyrtileg og vel rekin. Eignin státar af sólríkum suðursvölum sem snúa að sameiginlegum bakgarði með leiktækjum fyrir börn.
Skipulag:
Anddyri/hol, gangur, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Parket á gólfi og skápur fyrir yfirhafnir.
Eldhús: Parket á gólfi. Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, bæði efri og neðri skápum. Flísar eru á vegg við borðplötu. Eldavél með ofni og vifta fyrir ofan. Góð aðstaða fyrir borðkrók.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi. Útgengi er út á sólríkar suðursvalir sem snúa að sameiginlegum bakgarði.
Baðherbergi: Uppgert baðherbergi með glugga. Flísar á gólfi og að hluta á veggjum við sturtu. „Walk-in“ sturta með sturtugleri. Innrétting neðan við handlaug, speglaskápur fyrir ofan og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp. Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og innbyggður fataskápur. Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Geymsla: Góð 7,7 m² sérgeymsla staðsett í sameign á jarðhæð.
Nánar um húsið og umhverfið: Afar snyrtileg og góð sameign. Sameiginlegt þvottahús er í húsinu með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins. Einnig er stórt þurrkherbergi og vel skipulögð hjóla- og vagnageymsla. Fjöldi sameiginlegra bílastæða er við húsið. Á baklóðinni er skjólgóður sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
Eignin er staðsett í grónu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, þjónustu, útivistarsvæði og góðar samgöngur.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða [email protected]
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. nóv. 2013
15.500.000 kr.
18.700.000 kr.
80.5 m²
232.298 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026