Lýsing
Miklaborg og Böddi kynna:
Björt og vel skipulögð 2ja til 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með sérinngangi af svölum við Bjarkavellir. Íbúðin er skráð alls 63,7 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðarrými 61,5 fm og sérgeymsla í kjallara 2,2 fm.
Nánari Upplýsingar : Böddi Lgf S.8216300 eða [email protected]
Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Við forstofu er aukarými/geymsla með glugga og parketi sem getur nýst sem vinnuaðstaða, fataherbergi eða lítið svefnrými.
Bjart alrými sameinar stofu og eldhús með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu í ljósum og dökkum tónum, innbyggðri uppþvottavél, ofni í vinnuhæð og helluborði með háfi.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergið er flísalagt með sturtu með glervegg, innréttingu, vegghengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í kjallara fylgir sérgeymsla og í sameign er góð hjóla- og vagnageymsla.
StaðsetningEignin er á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu, verslanir, skóla á öllum stigum, íþróttasvæði Hauka, sundlaug, líkamsrækt og fjölbreytt útivistarsvæði.
Nánari Upplýsingar : Böddi Lgf S.8216300 eða [email protected]