Lýsing
Fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð á tveimum hæðum með góðum svölum við Skölavörðustíg í Reykjavík.
Eignin skiptist í eldhús og stofu í einu rými, svefnherbergi, baðherbergi en henni fylgir einnig hlutdeild í sameign og þvottahús.
Birt stærð samkv. HMS m². íbúðarrými 51,1 fm.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða [email protected]
✅ Frábært fyrsta eign.
✅ Björt íbúð með svölum.
✅ Miðbæjarlífið í göngufæri.
✅ Nálægð við helstu þjónustu.
Nánari lýsing:
Hol: Komið er inn í hol með opnu fatahengi.
Eldhús: Er með málaðri innréttingu á einum vegg og lítilli eyju, nýkegu helluborði og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Er með með parketi á gólfi og er opið rými með eldhúsi.
Svefherbergi: Gengið er upp hring stiga upp í opið rými sem er nýtt sem herbergi með opnum fataskápum og geymslurými undir súð. Þaðan er gengið er úr skjólgóðar svalir sem snúa út á Skólavörðustíg.
Baðherbergi: Er flísalagt með háum bað/sturtubotni, innréttingu, vaski og klósetti.
Þvottahús: Er í sameign á hæðinni fyrir neðan með annari íbúð.
Virkilega fín eign sem vert er að skoða á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem öll helsta þjónusta, almenningssamgöngur og skólar eru stutt frá.
Húsgjöld eignar eru samtals kr.24.350 .- á mánuði
Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða [email protected]
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat