Upplýsingar
Byggt 1948
160,5 m²
5 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 26. maí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Nesvegur 67, 107 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Nesvegur 67, Reykjavík. 160,5 fm miðhæð ásamt bílskúr við Nesveg 67 í grónu og eftirsóttu hverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er í reisulegu steinhúsi frá árinu 1949 og nýtur einstakrar staðsetningar rétt við sjávarsíðuna með fallegu útsýni yfir Skerjafjörðinn og Reykjanesskagann.Einnig er til sölu 93,9 fm íbúð í kjallara sem er í eigu sömu aðila.
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Íbúðin og sérgeymsla eru skráð 121,1 fm. Eigninni fylgir bílskúr sem er 39,4 fm, birt heildarstærð 160,5 fm.
Eignin skiptist í: forstofu og hol, þrjú svefnherbergi, tvær stofur, eldhús og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla með glugga.
Allir gluggar hafa verið endurnýjaðir á síðustu áratugum.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Íbúðin er björt með opin rými með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, útivistarsvæði og gönguleiðir við sjávarsíðuna.
Nánari lýsing:
Forstofa er sameiginleg með rishæð.
Hol og gangur tengja saman rými eignarinnar og gefa íbúðinni gott flæði.
Stofa og borðstofa eru einstaklega bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum og fallegu sjávarútsýni. Úr stofu er gengið niður á timburverönd sem snýr til suðurs. Parket er á gólfum.
Eldhús er bjart með endurnýjaðri hvítsprautaðri innréttingu og borðkrók. Eldhúsið var endurnýjað árið 2012. Góð tenging er á milli eldhúss og stofurýma. Parket á stofum, eldhúsi og holi er vandað eikarplankaparket sett á 2012.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfum.
Svefnherbergi II er gott barnaherbergi með parketi á gólfi og er það staðsett á móti hjónaherbergi.
Herbergi III er svokallað forsherbergi, staðsett við inngang með glugga á tvo vegu.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, vaski og baðkari með sturtu. Gluggi er á baðherbergi.
Í kjallara er sameiginlegt rúmgott þvottahús og sérgeymsla/herbergi.
Sameiginlegur garður til suðurs og vesturs.
Bílskúr nýlega endurbyggður og nýtt þak, rúmgóður með gönguhurð og glugga sem snúa út í garð – nýtt járn og gluggar en ekki einangraður eða kyntur.
Fyrir liggur að það þarf að endursteina húsið á næstu árum.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson lögg.fasteignasali í síma 824-9093 eða [email protected].
Unnar Kjartansson lögg.fasteignasali í síma 867-0968 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook