Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1997
64,3 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun kynnir: Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með góðri verönd og einkagarði í fjölbýlishúsi fyrir eldri borgara, 60 ára og eldri, við Skúlagötu 20 í Reykjavík. Eignin er skráð 64,3 fm og skiptist í hol, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Húsvörður er í húsinu. Allar nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali í síma: 660-3452 , [email protected] eða Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 , [email protected]Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
Komið er inn á dúkalagt hol með góðum fataskápum sem ná uppí loft. Eldhúsið er opið inn í stofu/borðstofu. Mahagony-innrétting með efri og neðri skápum. Ofninn er í vinnuhæð og háfur fyrir ofan eldunaraðstöðu. Stofan er rúmgóð og björt með útgengi út á verönd til suðurs, parket dúkur er á gólfi. Svefnherbergið er dúklagt með góðum fjórföldum fataskápum sem ná uppí loft.
Baðherbergið er með ljósri innréttingu með handlaug, dúklögðu gólfi og með flísalögðum veggjum. Sturta er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél. Innan íbúðar er geymsla. Eignin er skráð sem kjallari en er þó ekki niðurgrafin. Frá stofu er útgengi út á fallega hellulagða verönd og einkagarð sem tilheyrir íbúðinni.
Fasteignamat fyrir árið 2026 er 58.950.000 kr
Góð aðkoma er að húsinu Lindargötumegin og eru bílastæði þar fyrir íbúa sem og rafhleðslustæði. Í sameign er góður samkomusalur sem íbúar hússins hafa afnot af. Í húsinu er starfandi húsvörður og dyrasími með myndavél í íbúðum. Í næsta húsi (Lindargötu 57) rekur Reykjavíkurborg Vitatorg sem er samfélagshús fyrir eldri borgara. Þar er ýmiskonar þjónusta, m.a mötuneyti og félagsstarf sem íbúar í Skúlagötu 20 hafa aðgang að. ATH - Íbúðina má eingöngu selja félagsmönnum í Félagi eldri borgara 60 ára og eldri
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali í síma: 660-3452 , [email protected] eða Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. feb. 2019
36.250.000 kr.
32.500.000 kr.
64.3 m²
505.443 kr.
30. apr. 2015
24.000.000 kr.
23.000.000 kr.
64.3 m²
357.698 kr.
19. mar. 2012
18.700.000 kr.
18.000.000 kr.
64.3 m²
279.938 kr.
18. des. 2006
13.235.000 kr.
17.200.000 kr.
64.3 m²
267.496 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026