Lýsing
Miklaborg fasteignasala kynnir:
Glæsilegar nýjar 2ja–4ra herbergja íbúðir á eftirsóttum útsýnisstað á Hnoðraholtinu í nýju og spennandi hverfi í Garðabæ. Staðsetningin er afar góð þar sem stutt er í helstu stofnæðar, fjölbreytta þjónustu og útivistarsvæði.
Um er að ræða fallegt 12 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með bílakjallara. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna, nema í votrýmum þar sem gólfefni fylgja. Í öllum íbúðum er gólfhiti og gólfsíðir gluggar.
***Sjá nánar hér á heimasíðu verkefnisins***
Bókið einkaskoðun hjá Sæþóri í síma 855-5550 eða [email protected]
Bílastæði eru á sameiginlegri lóð og fylgja flestum íbúðum sérmerkt stæði í bílakjallara.
Húsið stendur á góðum útsýnisstað og njóta margar íbúðir glæsilegs útsýnis.
Allar íbúðir eru útbúnar sjálfstæðu loftræstikerfi sem tryggir stöðug loftskipti innan íbúðar.
Íbúð 201 er 3ja herbergja með stæði í bílageymslu og glæsilegu útsýni til norð-austurs.
Allar nánari upplýsngar veita:
Sæþór Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða [email protected]
Bára Gunnlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða [email protected]
Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4750 eða [email protected]
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða [email protected]
Birt stærð íbúðarinnar eru 88.3 fm, þar af 6.3 fm geymsla.
Eignin skipstist í tvö góð svefnherbergi með skápum, baðherbergi með sturtu, eldhús sem er opið inn í bjarta stofu og sér þvottahús. Stæði í lokaðri bílageymslu merkt. B03.
Hvort sem þú ert að kaupa þína fyrstu eign, ert að stækka eða minnka við þig, eða ert að leita að nútímalegu og vönduðu heimili, þá er hér um að ræða kost sem vert er að skoða.
Verktaki er GG verk, sem stofnað var árið 2006 og er rekið við góðan orðstýr. Fyrirtækið hefur byggt yfir 1500 íbúðir og atvinnurými og leggur ríka áherslu á vönduð vinnubrögð og framúrskarandi fagmennsku. GG verk er ISO vottað fyrirtæki
Afhending er áætluð í september 2026.