Lýsing
Miklaborg fasteignasala kynnir:
Glæsilegar nýjar 2ja–4ra herbergja íbúðir á eftirsóttum útsýnisstað á Hnoðraholtinu í nýju og spennandi hverfi í Garðabæ. Staðsetningin er afar góð þar sem stutt er í helstu stofnæðar, fjölbreytta þjónustu og útivistarsvæði.
Um er að ræða fallegt 12 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með bílakjallara. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna, nema í votrýmum þar sem gólfefni fylgja. Í öllum íbúðum er gólfhiti og gólfsíðir gluggar.
***Sjá nánar hér á heimasíðu verkefnisins***
Íbúð 103 er 2ja herbergja með 12 fm sérafnotareit til suðurs.
Bílastæði eru á sameiginlegri lóð og fylgja flestum íbúðum sérmerkt stæði í bílakjallara.
Húsið stendur á góðum útsýnisstað og njóta margar íbúðir glæsilegs útsýnis.
Allar íbúðir eru útbúnar sjálfstæðu loftræstikerfi sem tryggir stöðug loftskipti innan íbúðar.
Bókið einkaskoðun hjá Ingimundi lgf. í síma 867-4750 eða [email protected]
Birt stærð íbúðarinnar er 58.9 fm, þar af 4,7 fm geymsla.
Eignin skipstist í rúmgott svefnherbergi með skápum, baðherbergi með sturtu, eldhús sem er opið inn í bjarta stofu þaðan sem gengið er út á 12 fm sérafnotareit til suðurs.
Hvort sem þú ert að kaupa þína fyrstu eign, ert að stækka eða minnka við þig, eða ert að leita að nútímalegu og vönduðu heimili, þá er hér um að ræða kost sem vert er að skoða.
Verktaki er GG verk, sem stofnað var árið 2006 og er rekið við góðan orðstýr. Fyrirtækið hefur byggt yfir 1500 íbúðir og atvinnurými og leggur ríka áherslu á vönduð vinnubrögð og framúrskarandi fagmennsku. GG verk er ISO vottað fyrirtæki.
Afhending er áætluð í september 2026.
Allar nánari upplýsngar veita:
Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4750 eða [email protected]
Sæþór Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða [email protected]
Bára Gunnlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða [email protected]
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða [email protected]