Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2010
95,3 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Kjöreign fasteignasala kynnir: Glæsileg 2ja herbergja (áður 3ja) íbúð á 3. hæð. Íbúðin er björt með aukinni lofthæð (2.7 m) í eftirsóttu lyftuhúsi í Skuggahverfi 2-3. Sér bílastæði fylgir með rafhleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins ásamt sér geymslu og hjólageymslu. Sameign lítur einkar vel út og sinnir húsvörður daglegum störfum. Tvær lyftur eru í húseigninni.
Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagða forstofu með innbyggðum fataskápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, flísalögð sturta með sturtugleri. Innaf baðherbergi er þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og skolvaski. Hjónaherbergi er parketlagt og útgengt út á vestursvalir með svalalokun. Eldhús er parketlagt og er opið við stofu með vönduðum hvítum og viðarinnréttingum með hvítri granít borðplötu, rafmagnshelluborð, tengi fyrir uppþvottavél og ofn í vinnuhæð. Gólfsíðir gluggar sem gefa einstaka birtu. Gólfhiti er í allri íbúðinni. Sérgeymsla í snyrtilegri sameign. Merkt stæði í bílakjallara með uppsettri rafhleðslustöð.
Um er að ræða vandaða íbúð á einum vinsælasta stað borgarinnar. Stutt er í iðandi mannlíf, alla þjónustu; verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða [email protected].
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 [email protected]
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 [email protected]
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. okt. 2013
16.900.000 kr.
36.900.000 kr.
95.3 m²
387.198 kr.
14. feb. 2013
16.900.000 kr.
935.000.000 kr.
3772.5 m²
247.846 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026