Opið hús: Frostafold 23, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 28. maí 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15.
Lýsing
Eignin skiptist í eldhús, stofu og þvottahús á neðri hæð og á efri hæð er sjónvarpshol (möguleiki að breyta í herbergi), tvö svefnherbergi, baðherbergi og hol. Rúmgóður bílskúr á 1.hæð. Sérgeymsla í sameign. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan.
Eignin er skráð skv. HMS 113,1 m2, neðri hæð: 33,8 m2, risloft: 44,1 m2 og bílskúr 25,3 m2
Helstu kostir:
Sérbílskúr (25 fm) og geymsla í sameign (10 fm)
Björt íbúð með útgengi á stórar suðursvalir (c.a. 20 fm)
Mikið endurnýjuð eign með frábæru útsýni
Góð staðsetning nálægt náttúru og helstu þjónustu
Neðri hæð:
Anddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp sem er opið inn að stofu.
Stofa: Björt og góð stofa með útgengt á stórar svalir sem snúa til suðurs með miklu útsýni.
Eldhús: Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu frá Innlifun og góðum eldunartækjum. Eldhúsið er opið inn að stofu.
Þvottahús: Inn af anddyri er þvottahús.
Hringstigi liggur upp á efri hæð.
Efri hæð:
Komið er upp í bjart opið rými með mikilli lofthæð og að hluta undir risi.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpsrými er í opnu rými frá holi. Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið úr sjónvarpsholinu.
Hjónaherbergi: Að hluta undir risi. góður gluggi og innskot fyrir fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Að hluta undir risi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt nýlega endurnýjað baðherbergi með hvítum flísum, fallegri innréttingu, walk in sturtu með glerskilrúmi. Hiti í gólfi og góð lofthæð er inni á baðherbergi.
Sameign: Sérgeymsla(9,9 fm) er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 25,3 fm bílskúr. Skúrinn er staðsettur næst inngangi og er með gott bílastæði beint fyrir framan hann.
Endurbætur og viðhald:
Íbúðin var mikið endurnýjuð 2022
Eldhús endurnýjað með innréttingu frá Innlifun 2022
Baðherbergi endurnýjað alveg og settur hiti í baðherbergisgólf árið 2022
Allt nýtt í gólfefnum m.a. Pergo harðparket frá Egill Árnason 2022
Nýtt rafmagn í eldhúsi, baðherbergi og búið að fjölga tenglum í íbúðinni
Yfirborð á svölum var tekið í gegn 2021
Skipt um glugga og svalahurð á neðri hæð 2024
Um er að ræða virkilega fallega og mikið endurnýjaða eign sem vert er að skoða. Leikskólinn Sunnufold er handan við húsið og göngufæri er í Foldaskóla. Einnig er göngufæri í verslanir og þjónustu á Foldatorgi og eru undirgöng undir Fjallkonuveg. Stutt í Grafarvogslaug, kirkju o.fl.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður