Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1985
svg
304,4 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 26. maí 2026 kl. 12:15 til 12:45

Opið hús: Daltún 17, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. maí 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Lýsing

Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Vandað og vel við haldið fjölskylduhús í góðri staðsetningu við Daltún 17 í Kópavogi. Sjö svefnherbergi, þrjú baðherbergi, björt og opin rými, góð suður og austur verönd með heitum potti og skjólveggjum. Auka íbúð í kjallara með sér inngangi. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, góðar  gönguleiðir og  stutt í almenningssamgöngur.  Húsið er  byggt 1985, skráð alls 304,4fm.  Íbúðarrými 276,4fm og bílskúr 28fm.

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

NÁNARI LÝSING: Daltún 17 er vandað og vel við haldið einbýlishús á þremur hæðum auk bílskúrs.
Stór og góð timbur og hellulögð verönd er í kringum húsið á þrjá vegu, suður, austur og vestur, með fallegu gróðri, uppbyggðum beðum, snjóbræðslu að hluta og heitum potti.

1. hæð 107,3fm
Forstofa: Gengið er inn í flísalagða forstofu af suðurverönd.
Forstofubað Flísalagt, upphengt salerni, sturta.
Hol / gangur: Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman 1. og 2. hæð með góðum stiga. Stór fataskápur. Úr holi er einnig gengið í kjallara.
Skrifstofa/herbergi: Gengið er inn í rúmgott og bjart herbergi úr holi.
Stofa / borðstofa:  Björt og opin með parketi á gólfum og útgengt í sólstofu og þaðan í garð.
Eldhús:  Opið við stofu og borðstofu, parket á gólfi, hvít og beiki innrétting, ofn í vinnuhæð, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél.
Sólstofa 11,2fm:  Gengið úr stofu/borðstofu, flísar á gólfi, gólfhiti, útgengt í garð.

2. hæð 72fm. Gólfflötur er mun stærri þar sem hæðin er að hluta undir súð.
Hol: Komið er upp stiga í gott og bjart hol þaðan sem gengið er inn í önnur rými hæðarinnar. Tveir opnanlegir þakgluggar eru í þessu rými og gott og aðgengilegt geymsluloft. Parket á gólfi, hiti í gólfi.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi með góðum fataskáp, parketi á gólfi, útgengt á suður svalir.
Svefnherbergi II: Góður fataskápur, parketi á gólfi, svefnloft.
Svefnherbergi III: Góður fataskápur, parketi á gólfi, svefnloft.
Svefnherbergi IV: Parket á gólfi, útgengt á suður svali, möguleiki á að breyta í þvottaherbergi (allar lagnir og loftun til staðar). Hiti í gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, góð innrétting og skápar, upphengt salerni, baðkar, þakgluggi, hiti í gólfi.
Í herbergjum eru geymslurými undir súð sem nýtast vel og hafa gott aðgengi.

Kjallari / auka íbúð 97,1fm.
Komið er inn í íbúðina um sér inngang á norðurhlið hússins en einnig er innangengt af hæð.
Anddyri/gangur:
 Flísar á gólfi, hiti í gólfi, stigi upp á hæð.
Þvottahús: Rúmgott með góðri innréttingu, flísalagt, gott þurrk og geymslurými. Þvottahús er í dag nýtt fyrir allt húsið.
Bað: Flísar á gólfi og veggjum, salerni, innrétting með vaski og sturta.
Eldhús og stofa: eru í sameiginlegu opnu rými, innrétting með eldavél, dúkur og parket á gólfum.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart með góðum skápum, gluggum á tvo vegu, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Minna herbegi sem í dag er nýtt sem geymsla, gluggar á tvo vegu.

Bílskúr, 28fm:
Rafdrifinni hurð, geymsluloft, innrétting og góð vinnuaðstaða, vatn, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð.

Framkvæmdir og viðhald á húsinu skv. núverandi eigendum.
2024
Ný vatnsrör þrædd í bílskúr.
2023
Hús málað að utan.
2022
Kjallari málaður að hluta, rafmagnstöflur endurbættar, 3ja fasa rafmagn dregið í bílsskúr og sett upp hleðslustöð.
2021
Bílastæði hellulagt og lögð snjóbræðsla
2020
Pallar og grindverk yfirfarin og máluð, hluti af gleri í sólskála endurnýjað
2018
Stigi á milli hæða teppalagður með vönduðu ullarteppi.
2017
Bílskúrshurð og gluggar málaðir.
2014
2. hæð endurnýjuð: Skipt um þak, járn, pappa, einangrun og timbur eftir þörfum. Milliveggir endurnýjaðir, geymsluháaloft smíðað og settur niðurdraganlegur stigi fyrir gott aðgengi, rafmagn endurnýjað, loft klædd, baðherbergi endurnýjað. Hiti settur í gólf á baði, holi og suðausturherbergi. Leiðslur lagðar og niðurfall sett í gólf (gert er ráð fyrir að hægt sé að hafa þvottaherbergi á efri hæð) Hæðin máluð. Innihurðar endurnýjaðar.
Baðherbergi á 1. hæð endurnýjað og hiti settur í gólf á baðherbergi og forstofuherbergi.
Rafmagn yfirfarið, innstungum fjölgað á miðhæð.
Veggur milli skrifstofu og stofu hljóðeinangraður, gólfefni endurnýjuð að hluta, Innihurðar endurnýjaðar á 1. hæð. 
2012
Hiti settur í gólf í þvottahúsi í kjallara og gólf flísalagt.
2010
Pallur við vesturenda endurnýjaður, heitur pottur (hitaveitupottur). Þak fyrir framan útidyr stækkað. Grafið frá húsi, dren endurnýjað við sunnanvert hús, snjóbræðsla lögð og hellulagt.
 
Eignin Daltún 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-9457, birt stærð 304.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Fyrirhugað viðhald:
Móða í einu gleri í sólstofu.
Komið að endurnýjun á þröskuldi á útihurð í sólstofu.
Móða í gleri á austurhlið í herbergi í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

img
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Gimli fasteignasala
Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
img

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Skipholt 35, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. feb. 2007
47.430.000 kr.
54.400.000 kr.
304.4 m²
178.712 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Skipholt 35, 105 Reykjavík