Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1965
191,4 m²
6 herb.
3 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Til sölu vandað og mikið endurnýjað einbýlishús með bílskúr, stórum útsýnissvölum og rúmgóðri lóð við Hraunbraut 26 á Kársnesinu í Kópavogi. Húsið hefur verið endurnýjað með miklum metnaði og býður upp á nútímaleg þægindi í rótgrónu og eftirsóttu íbúðahverfi. Aðalrými hússins eru björt og opin, með stórum gluggum til norðurs og vesturs þar sem útsýnið nýtur sín vel. Eldhús, stofa og borðstofa tengjast á fallegan hátt og mynda alrými sem hentar jafn vel fyrir daglegt fjölskyldulíf og móttöku gesta. Eignin er skráð 191,4 fm samkvæmt fasteignaskrá. Að auki hefur verið útbúin um 30 fm íbúð með sérinngangi á neðri hæð, með eldhúsaðstöðu og baðherbergi. Rýmið er óskráð og ósamþykkt, en eykur nýtingarmöguleika eignarinnar. Nýtanlegt rými hússins er því um 221 fm. Lóðin er 712 fm. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og ber með sér yfirvegaða og tímalausa hönnun þar sem útsýni, birta og gott flæði milli rýma eru í forgrunni.Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var húsið endurnýjað með mjög umfangsmiklum hætti árið 2021. Þar var ekki eingöngu horft til útlits heldur var rafmagn, lagnagrind, vatnslagnir og skolplagnir innandyra allar endurnýjaðar. Viðhaldi utanverðu hefur verið vel sinnt. Nýjar stofnlagnir fyrir heitt og kalt vatn voru lagðar inn í húsið, auk nýs rafmagnsstrengs. Þá var sett ný ílögn í gólf, gluggar og gler í íbúðarrýmum voru endurnýjaðir og gólfhiti lagður í meginhluta hússins, að undanskildu íbúðarrými í kjallara. Árið 2025 var sett upp loftskiptikerfi í húsið og ný bílskúrshurð. Rafmagnsgardínur eru í flestum rýmum frá Luxaflex og hússtjórnarkerfi er að einhverju leyti í eigninni.
Forstofa:
Komið er inn í rúmgóða, flísalagða forstofu.
Baðherbergi við forstofu:
Innaf forstofu er flísalagt baðherbergi með sturtu og glugga. Þar er stutt út á pall með morgunsól þar sem seljandi sá fyrir sér að setja heitapott.
Hol og útsýnissvalir:
Frá forstofu er gengið inn í parketlagt hol sem tengir saman helstu rými hússins. Frá holinu er gengið út á stórar svalir þar sem útsýnið nýtur sín sérstaklega vel.
Eldhús:
Eldhúsið er sérsmíði frá HTH. Þar er eyja og quartzite steinn á borðum sem þolir hita og hnjask. Tækjaskápur er í endan. Í eldhúsinu eru vönduð innbyggð tæki, þar á meðal vínkælir, ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa
Stofa og borðstofa mynda bjart og glæsilegt alrými með stórum gólfsíðum gluggum til norðurs og vesturs. Rýmin njóta mikillar birtu, fallegs flæðis og einstaks útsýnis. Þetta er hjarta hússins, hlýlegt, opið og einstaklega vel heppnað rými fyrir fjölskyldulíf og gestakomur.
Skrifstofa / fjórða svefnherbergi:
Frá holi er gengið inn í opið og bjart skrifstofurými með útsýni. Rýmið er í dag nýtt sem skrifstofa, en auðvelt væri að loka því af og nýta sem svefnherbergi ef þörf er á. Rennihurð með gleri er sérsmíðuð hjá Formus.
Svefnálma:
Svefnherbergin eru vel aðskilin frá aðalrýmum hússins, sem skapar gott næði.
Hjónaherbergi:
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.
Barnaherbergi:
Tvö parketlögð herbergi sem nýtast vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnurými.
Aðalbaðherbergi:
Fallegt flísalagt baðherbergi með sturtu, baðkari og glugga. Innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Formus.
Þvottahús:
Flísalagt þvottahús með innréttingum og góðri vinnuaðstöðu. Þaðan er hægt að fara upp á stórt geymsluloft sem nær yfir allt húsið.
Bílskúr:
Ný bílskúrshurð var sett upp árið 2025 og rýmið allt málað.
Hraunbraut 26 er á eftirsóttum stað á Kársnesinu, í rólegu og grónu íbúðahverfi þar sem stutt er í útivist, veitingastaði, kaffihús, skóla, leikskóla, þjónustu og menningu. Kársnesið hefur á undanförnum árum styrkst sem eitt áhugaverðasta íbúðahverfi höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. des. 2020
79.250.000 kr.
95.000.000 kr.
191.4 m²
496.343 kr.
3. feb. 2011
36.400.000 kr.
44.500.000 kr.
191.4 m²
232.497 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026