Opið hús: miðvikudaginn 27. maí kl. 17:15 til 17:45. Vesturgata 14, 230 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 102.
Lýsing
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 87,60 fermetrar, auk sérgeymslu í sameign.
Um er að ræða virkilega vel staðsetta eign miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Endurbætur:
2025 - Nýir gluggar
2025 - Endurnýjaðir rofar og tenglar
2023 - Nýleg eldhúsinnrétting
2023 - Nýlegt þak
Innihurðar nýlega uppgerðar
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar
Nýjar gardínur í öllum rýmum (vængir geta fylgt með)
Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið er inn í opið og bjart rými með parketi á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi. Útgengt er út á svalir.
Eldhús: Snyrtileg og nýleg hvít eldhúsinnrétting frá 2023 með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur við glugga.
Þvottahús: Innaf eldhúsi. Flísalagt gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, hvít innrétting og baðkar með sturtu.
Sérgeymsla í sameign
Annað:
Eitt sérmerkt bílastæði fylgir eigninni
Tvö sameiginleg bílastæði
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
Staðsetning:
Frábær staðsetning miðsvæðis í Keflavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður