Opið hús: Lindargata 39, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 14 02 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 27. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Lindargata 39 er glæsilegt fjölbýlishús sem byggt var árið 2014 í 2. og 3ja áfanga í Skuggahverfinu. Húsið stendur á eignarlóð ásamt húsunum við Vatnsstíg 16-22 en stór og vel skipulagður bílakjallari undir húsunum er sameiginlegur sem og fallegur garður á milli húsanna en þar er allur frágangur til fyrirmyndar.
Íbúðin sem um ræðir er er merkt 14-0203 við Lindargötu 39, hún er 103,5 fm. að stærð skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 95,8 fm. og sér geymsla á jarðhæð 7,7 fm. Þá fylgir eigninni stæði í lokaðri bílageymslu merkt 16B-24, vel staðsett með tilliti til lyftu og stærðar.
Nánari lýsing; Komið er inn í glæsilega sameign og með lyftu upp á 2. hæð, lyfturnar eru tvær, aðgangstýrðar þannig að eingöngu íbúar hverar hæðar hafa aðgengi að sinni hæð.
Íbúðin er glæsileg og vel skipulögð, hol/forstofa er með skápum við endann sem ná upp í loft og nýta rýmið til fullnustu.
Opið og glæsilegt alrými með aukinni lofthæð (2,75 m) rúma fallega setustofu, borðstofu og eldhús. Gólfsíðir gluggar eru á tvo vegu, austur og norður með frábæru útsýni út á Frakkastíg og út á sjóinn.
Stofurnar er rúmgóðar og í góðu flæði við vel búði eldhúsið. Innrétting frá GKS er með góðu hirsluplássi, vönduð eldhústæki frá Miele, tengi fyrir uppþvottavél og eyja sem opnast mót stofunni með aðstöðu fyrir 2-3 til að sitja við. Gólfsíðir gluggi í eldhúsinu og stofum gefa skemmtilegt yfirbragð og tryggja gott birtuflæði.
Herbergin eru tvö; Rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi og barnahbergi með einnig með fataskáp. Í herbergjunum eru gólfsíðir gluggar.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði baðkar og góður sturtuklefi, innrétting með miklu skápaplássi og upphengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðarinnar, þar er innrétting og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurkara, hægt að hafa skolvask í innréttingu við hlið vélanna.
Íbúðin er einstaklega björt og falleg, vandað gólfefni, viðarparket í stofu, gangi og svefnherbergjum en flisar í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. Gólfhiti er íbúðinni.
Í húsinu er loftskiptikerfi sem tryggir góð loftgæði þó gluggar séu ekki opnir um tíma.
Sér geymsla íbúðarinnar er 7,7 fm. að stærð staðsett í kjallara í sameign. Sameiginleg vagna og hjólageymsla er vel staðsett á 1. hæð sem einnig er læst og tengd við öryggiskerfi húsfélagsins.
Íbúðinni fylgi stæði í lokaðri bílageymslu þar sem góð aðstaða er m.a. til að þrífa bílinn. Góð aðkoma er að húsinu fjölmörg, sérmerkt, bílastæði á lóðinni fyrir gesti og íbúa.
Þetta er vönduð eign í miðborginni - gott utanumhald og rekstur húsfélags í höndum húsvarðar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.