Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Jóninnuhagi 4 íbúð 203

600 Akureyri

71.900.000 kr.

828.341 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2514809

Fasteignamat

60.100.000 kr.

Brunabótamat

50.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
86,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Jóninnuhagi 4 íbúð 203 - Nýleg 4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í vesturenda í litlu fjölbýlishúsi syðst í Hagahverfi - stærð 86,8 m²

- Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.
- Hvítar innihurðar.
- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Húsið er steypt og var íbúðin tekin í notkun árið 2022.


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu.
Sameiginlegt tæknirými er undir stigapallinum. 

Forstofa og gangur eru með ljósu harðparketi á gólfi og svörtu opnu fatahengi með skúffu og led baklýsingu.
Eldhús, vönduð L-laga svört plastlögð innrétting (Nero oak) með grárri borðplötu og svörtum vask. Mjúklokun er á skúffum og skápum. Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar suður svalir, skráðar 7,6 m² að stærð. 
Hjónaherbergi er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum þreföldum fataskáp. Stærð svefnherbergis er skv. teikningum 11,9 m².
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi. Annað herbergið er með ljósan tvöfaldan fataskáp. Stærð svefnherbergja er skv. teikningum 8,7 m².
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri plastlagðri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Sér geymsla fylgir íbúðinni og er hún á sömu hæð og skráð 5,3 m² að stærð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. nóv. 2021
3.050.000 kr.
46.700.000 kr.
86.8 m²
538.018 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone