Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
sumarhús

Höfðabyggð E03

607 Akureyri

62.900.000 kr.

556.637 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2298200

Fasteignamat

68.550.000 kr.

Brunabótamat

69.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
113 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - [email protected]

Höfðabyggð E03 – Glæsilegt og vel staðsett sumarhús með gestahúsi í Lundsskógi í Fnjóskadal – samtals 113,0 m²


Um er að ræða einstaklega bjartan og vel skipulagðan 4ra herbergja sumarbústað ásamt sér gestahúsi og útigeymslu á fallegum útsýnisstað í Lundsskógi í Fnjóskadal.
Eignin stendur á rúmgóðri lóð með stórum sólpalli, heitum potti og köldu kari ásamt glæsilegu útsýni yfir dalinn og nærliggjandi náttúru.
Aðalhúsið er skráð 87,2 m² og gestahúsið 25,8 m², samtals 113,0 m².

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, svefnloft, salerni, sturtuaðstöðu með gufubaði, þvottahús, stóra timbur verönd og sér gestahús með baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofan er rúmgóð með vínylparketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu alrými með aukinni lofthæð, vínylparketi á gólfi og gluggum til þriggja átta sem gefa rýminu mikla birtu og fallegt útsýni. Þaðan er einnig gengið út á rúmgóða timburverönd með frábæru útsýni.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu með efri og neðri skápum ásamt stæði fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö á neðri hæð, bæði með vínylparketi á gólfi og glugga.
Svefnloftið er með parketi á gólfi, glugga og er afar rúmgott með svefnpláss fyrir a.m.k. fjóra. Teppalagður stigi liggur upp á loftið.
Salernið er með hvítri innréttingu, vegghengdu wc og handklæðaofni.
Inn af salerni er flísalagt rými með rúmgóðri flísalagðri sturtu með gleri, vaski, handklæðaofni og gufubaði. Úr rýminu er útgengt á sólpall.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi, bekkplötu og hillum.
Gestahúsið stendur við aðalhúsið og er skráð 25,8 m² að stærð. Þar er opið svefnrými með parketi á gólfi og rúmgóðu svefnplássi fyrir a.m.k.fjóra.
Baðherbergið í gestahúsinu er með sturtuklefa, salerni og lítilli hvítri innréttingu við vask.
Stór timbur verönd liggur í kringum allt húsið. Þar er heitur pottur, kalt kar og gott pláss fyrir útivist og samveru. Þar er einnig geymsla fyrir garðhúsgögn og útdraganlegir skjólveggir.
Útsýni frá pallinum er afar fallegt.

Annað:
- Frábær staðsetning í Lundsskógi í Fnjóskadal
- Aðeins um 15 mínútna akstur frá Akureyri
- Stutt í golfvöllinn í Lundsskógi
- Rúmgóður sólpallur með heitum potti og köldu kari
- Leiksvæði með rólum og rennibraut við húsið
- Geymsluskúr við bílaplan
- Lítið dúkkuhús með verönd ofarlega á lóðinni
- Gólfhiti er í aðalhúsinu en ofnar í gestahúsi
- Innbú getur fylgt með við sölu
- Ljósleiðari er komin inn og tengdur
- Rúmgott bílaplan og snyrtileg aðkoma
- Lóðarleiga er um 180 þúsund krónur á ári
- Lóðarleigusamningur er til 50 ára og eru um 40 ár eftir af samningstíma

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. apr. 2009
10.685.000 kr.
23.000.000 kr.
87.2 m²
263.761 kr.
8. des. 2008
11.850.000 kr.
28.000.000 kr.
87.2 m²
321.101 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone