Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Fannagil 10

603 Akureyri

154.900.000 kr.

679.684 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2282212

Fasteignamat

122.950.000 kr.

Brunabótamat

122.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2006
svg
227,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Fannagil 10 - Glæsilegt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum, með innbyggðum bílskúr og stórum útigeymslum við vinsæla götu í Giljahverfi - stærð 227,9 m² auk um 18 m² geymslu undir verönd.
Heildarstærð með geymslunni er um 246 m²

* Vandaður garður, steypt og hellulögð bílaplön, steyptar verandir með skjólveggjum, heitum potti og útisturtu.
* Tvær rúmgóðar geymslur fyrir hobbýin.
* Gegnheilt hnotuparket og flísar á gólfum.
* Allar innréttingar, fataskápar og innihurðar er sérsmíðað, spónlagt með hnotu.
* Ljós kvartssteinn er á bekkjum í eldhúsi og baðherbergjum. 
* Innfelld lýsing í helstu rýmum og aukin lofthæð í hluta efri hæðar.
* KNX stýrikerfi fyrir ljós og hita.
* Útsýni.


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Efri hæð 135,1 m²:
Forstofa, eldhús og stofa í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Neðri hæð, 92,8 m² auk óskráðrar um 18 m² útigeymslu: Sjónvarpshol, baðherbergi, tvö svefnherbergi og tvær rúmgóðar geymslur.

Forstofa er með flísum á gólfi, fjórföldum fataskáp og innfelldri lýsingu. 
Eldhús, sérmíðuð spónlögð hnotu innrétting og eyja með ljósri kvarst borðplötu. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Siemens tæki, ofn, örbylgjuofn, helluborð með viftu út og íssápur. Borðstofa með gólfsíðum útsýnisglugga til austurs. Milli stofu og eldhúss er forsteyptur hringstigi með járn handriði niður á neðri hæðina. 
Stofa og eldhús eru í alrými þar sem flísar eru á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Stórir gólfsíðir gluggar til tveggja átta og hurð til suðurs út á steypta verönd.
Sjónvarpshol er á neðri hæðinni með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu. 
Svefnherbergin eru fjögur, öll með gegnheilu hnotu parketi á gólfum og sérsmíðuðum spónlögðum hnotu fataskápum. Innfelld lýsing er í loftum. Úr hjónaherbergi er útgengt á verönd til suðurs og úr öðru barnarherberginu á neðri hæðinni er útgengt til austurs. Stærð herbergja er skv. teikningum 11,2 , 10,3 , 10,3 og 9,8 m²
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Aðalbaðherbergið er á efri hæðinni og er það mjög rúmgott. Þar eru flísar í hólf og gólf, innfelld lýsing, spónlögð hnotu innrétting með ljósri kvarts borðplötu, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar og rúmgóð walk-in sturta. Opnanlegur gluggi og útsog. Baðherbergi á neðri hæðinni er í svipuðum stíl, flísar á gólfi og veggjum, spónlögð hnotu innrétting með kvarst borðplötu, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta. Innfelld lýsing og útsog.
Þvottahúsið nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar eru flísar á gólfi, góðir skápar og spónlögð hnotu innétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr. 
Bílskúr er skv. teikningum 24,1 m² að stærð og með flísum á gólfi og hluta veggja. Innst í bílskúrnum er spónlögð hnotu innrétting með flísalagðri borðplötu. Innkeyrsluhurð er með rafdrifnum opnara. 
Tvær mjög rúmgóðar geymslur eru á neðri hæðinni og er utangengt í þær. Önnur er undir veröndinni, um 18 m² að stærð og með lítilli "bílskúrshurð".  Undir eldhúsi, þvottahúsi og bílskúr er 30,8 m² geymsla með flísum á gólfi og þar er lofthæð um 2,25 m. Bílskúrshurð með gönguhurð í. Fyrir framan er steypt stétt með hitalögnum í hluta. Aðkoman að báðum geymslunum er niður malarborinn ramp á norður horni lóðar.

Lóð: Fyrir framan bílskúrinn er steypt og hellulagt bílaplan fyrir þrjá bíla með hitalögnum í stærstum hluta. Einnig eru hitalagnir í tröppum niður með norðurhliðinni og í stétt með austurhliðinni að tröppum upp á verönd.
Fyrir framan húsið og með suðurhliðinni eru steypt verönd með skjólveggjum. Hitalagnir eru í hluta. Tenglar og lýsing er í veggjum. Útisturta og heitur pottur.
Á lóðarmörkunum að sunnan er steypta rúmgott bílaplan fyrir t.d. hjólhýsi.

Annað
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Lokað frostlaugskerfi er í bílaplani og veröndum.
- Útsog er frá báðum baðherbergjum, þvottahúsi og úr stærri geymslunni.
- Ídráttarrör úr rafmagnstöflu fyrir rafhleðslustöð.
- Sólstoppgler í gluggum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone