Opið hús: Háaleitisbraut 113, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 01 03. Eignin verður sýnd sunnudaginn 31. maí 2026 milli kl. 14:30 og kl. 15:00.
Lýsing
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergin eru þrjú á herbergjagangi með parketi á gólfi. Stórir fataskápar á gangi, en skápar eru að auki í tveimur herbergjum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, stórum spegli með baklýsingu, upphengdu salerni og steyptri sturtu með glervegg.
Stofan og borðstofan eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt út á vestursvalir.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og flísum á gólfi. Gluggi er í eldhúsi með útsýni.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Í sameign er sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegum rýmum.
Í bígerð er á vegum húsfélags að mála húsið að utan. Kostnaður ca 1 milljón á þessa íbúð.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat