Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1968
102,5 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 30. maí 2026
kl. 14:30
til 15:00
Fasteignasali tekur á móti áhugasömum í íbúð 101
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með stórum suðurpalli við Dalaland 6. Íbúðin hefur verið smekklega uppgerð á undanförnum árum. Eldhús er opið við stofu með fallegri innréttingu og stórri eyju. Baðherbergi hefur verið endurnýjað frá grunni með sérsmíðuðum innréttingum frá Eldhúsval og fallegum stein á borði frá Steinsmiðjunni Rein. Innfelld blöndunartæki eru bæði í sturtu og við handlaug. Gólfefni og innihurðir hafa einnig verið endurnýjaðar og eru frá Birgisson. Sólstofa hefur verið byggð út frá stofu og er utan skráðra fermetra. Útgengt á stóran og skjólgóðan suðurpall með frábærri aðstöðu til útiveru. Húsið hefur fengið mikið og gott viðhald alla tíð og hefur m.a. bæði þak, frárennslislagnir og dren verið endurnýjað. Um er að ræða einstaklega bjarta og vel skipulagða íbúð á eftirsóttum stað í Fossvoginum þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og falleg útivistarsvæði.Eignin er skráð 102,5 fm og skiptist í forstofu/hol, tvö rúmgóð svefnherbergi með góðu skápaplássi, opið og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, glæsilegt baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar auk um 6 fm sólstofu sem er utan skráðra fermetra.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Flísalögð með mjög góðu skápaplássi.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi og stórri eyju. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi á suðurpall í gengum sólstofu.
Sólstofa: Er opin við stofu með gólfhita og flísum á gólfi. Er um 6 fm og er utan skráðra fermetra.
Garður: Útgengi á stóran sólpall sem vísar til suðurs og nýtur því sólar frá morgni til kvölds. Lóðarmörk eru afmörkuð með fallegum gróðri og skjólveggjum. Á palli er lítill geymsluskúr.
Svefnherbergisgangur: Parketlagður með góðum, sérsmíðuðum fataskáp.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Mjög rúmgott og bjart með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með glæsilegri walk-in sturtu, sérsmíðaðri innréttingu, stein á borðum, innfelldum blöndunartækjum, upphengdu salerni og handklæðaofni. Góður, opnanlegur gluggi. Á baðherbergi hefur þvottavél og þurrkara verið komið haganlega fyrir í innréttingu.
Geymsla: Rúmgóð og staðsett innan íbúðar á svefnherbergisgangi.
Sameign og lóð: Falleg aðkoma er að húsinu og hefur lóð nýlega verið endurnýjuð með hlöðnum beðum. Stigagangur er mjög snyrtilegur og er góð hjólageymsla í sameign.
Bílastæði: Næg bílastæði eru framan við hús og eru í sameign.
Viðhald og framkvæmdir að sögn seljanda:
2025: Rafmagnstafla í stigagangi endurnýjuð
2024: Vatnsgrind yfirfarin og endurnýjuð að hluta. Baðherbergi, gólfefni og innihurðir íbúðar endurnýjaðar.
2022: Pallur stækkaður
2021: Þakjárn, rennur og lofttúður endurnýjaðar
2020: Skólp og dren endurnýjað
2019: Múr sprunguviðgerður og málaður.
Um er að ræða einstaklega smekklega eign á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla og útivistarsvæði. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. maí. 2021
49.150.000 kr.
61.000.000 kr.
102.5 m²
595.122 kr.
25. okt. 2018
42.550.000 kr.
47.900.000 kr.
102.5 m²
467.317 kr.
22. mar. 2011
21.500.000 kr.
26.000.000 kr.
102.5 m²
253.659 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026