Opið hús: Vesturtún 53, 225 Garðabær. Eignin verður sýnd sunnudaginn 31. maí 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:45.
Lýsing
Forstofa er með vínylparketi á gólfi og hengi.
Hol / gangur er með parketi á gólfi og þar er hægt að hafa tölvuaðstöðu.
Stofan og borðstofan eru í opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt út á verönd sem snýr í suður og vestur.
Eldhúsið er með fallega hvíta og dökkbæsaða innréttingu og parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergið er með fallega hvíta innréttingu og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu og þar er inntakið fyrir heitt og kalt vatn.
Ofan íbúðarrýmis er stórt þakloft sem nýtist sem geymslurými.
Afgirt verönd er í kring um húsið með heitum potti. Lítið geymsluhús er á verönd.
Nýlega steypt plan fyrir framan hús ásamt hellulögðu bílaplani. Fyrir liggur leyfi frá Garðabæ um byggingu smáhýsis á lóð.
Þakkantur var endurnýjaður að hluta 2025. Steypt hús klætt með Steni klæðningu.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat