Lýsing
Milli byggingarinnar og strandarinnar við Fossvog er fallegt grænt útivistarsvæði. Göngu- og hjólastígar liggja hjá eigninni og tengjast meðal annars nýrri göngu- og borgarlínubrú milli Kópavogs og Reykjavíkur, sem er í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskápum og fatahengi.
Stofa: stofan er rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Harðparket er á gólfi og frá stofu er gengið út á vestursvalir.
Eldhús: eldhúsið er vel útbúið með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Voke III. Gott skápapláss, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og span helluborð með háf yfir. Ofninn er í vinnuhæð.
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Stór sturta með glerskilrúmi og innrétting með stein á borði. Salerni er upphengt og handklæðaofn.
Þvottaherbergi: innaf baðherbergi er þvottaherbergi.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná uppí loft.
Geymsla: geymsla eignarinnar er innaf eldhúsi.
Sameign: í sameign hússins er hjóla og vagnageymsla og eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Niðurlag: Þetta er eftirsótt og vinsæl staðsetning þar sem allt er til staðar í hverfinu: Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna, góðar samgönguleiðir auk þess sem ný brú frá Kársnesi yfir í miðbæ Reykjavíkur er fyrirhuguð. Grunnskóli og leikskólar eru í göngufjarlægð. Svæðið í heild mun einkennast af nýjum íbúðum í bland við atvinnubyggð. Bryggjusvæðið verður endurnýjað og gagnger uppbygging mun eiga sér stað í hverfinu sem er staðsett á einum fallegasta og gróðursælasta útsýnisstað á höfuðborgarsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.