Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Bjarklind Þór Olsen
Vista
einbýlishús

Aðalgata 2

580 Siglufjörður

52.000.000 kr.

176.811 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2130044

Fasteignamat

57.700.000 kr.

Brunabótamat

111.080.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1928
svg
294,1 m²
svg
10 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Flott hús á þrem hæðum í miðbæ Siglufjarðar.
Húsið líklega flutt inn frá Noregi á sínum tíma.
Stór lóð við hliðina  á þessu húsi þar sem áður var frystihús sem fauk getur fylgt með í kaupunum.


Húsið er timburhús byggt 1928 en hefur að miklu leiti verið endurnýjað bæði úti og inni á síðustu árum. 
Húsið hefur verið nýtt til útleigu til bæði til ferðamanna og annara.
Sér íbúð með sér inngangi er í húsinu og í risi eru 4 svefnherbergi sem eru tilbúin til útleigu.
Einnig er í viðbyggðum íbúðargámi, sturtur og sauna.

Á jarðhæð eru þrír inngangar - tveir á vesturhlið sem tengjast stigum tveim upp á efri hæðir og einn á austurhlið sem er sér inngangur fyrir íbúðina á jarðhæð.
Á 1. hæðinni hefur nýlega verði útbúin sér íbúð sem er eldhús, snyrting með sturtu, stofa og tvö svenherbergi. Auk þess er á 1. hæð, hol þaðan sem gegnt er í þvottahús, snyrtingu og sturtu aðstöðu og sauna. Eitt sér aukaherbergi er á 1. hæðinni sem nýtt er sem skriftstofa. 
Á miðhæðinni er hol, baðherbergi gott uppgert , eldhús með eldri innréttingu, tvær veglegar stofur og innaf þeim gott svefnherbergi. 
Í risi eru svo 4 svefnherbergi á gangi og stór óinnréttuð geymsla sem nær upp í rjáfur. Þar mætti útbúa stofu eða fleiri herbergi.
Samkvæmt teikningum má byggja við húsið bátaskyli eða bílskúr þar sem nú er gámur
Á síðustu árum hefur þak verið endurnýjað, einnig gluggar, ofnar og lagnir undir húsinu.

Upplýsingar gefur Ægir s. 896-8030 eða [email protected]

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.

Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone
Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone