Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1987
svg
153,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús miðvikudaginn 3. júní kl. 17:00 - 17:30. *** Verið velkomin ***

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög falleg, björt og vel skipulöð 5-6 herb. íbúð á 2 hæðum í litlu fjölbýli, eignin er 153,9fm þar af 24,7fm bílskúr.
Íbúðin skiptist í neðri hæð: Forstofa, stofa, eldhús með þvottahúsi inn af, baðherbergi, rúmgott hjónaherbergi og barnaherbergi, á efri hæð eru 2 svefnherbergi, sjónvarpsstofa og baðherbergi. Bílskúr er með millilofti. Íbúðin er mikið endurnýjuð stílhrein og falleg.
Einstök eign í rólegri götu þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir og örstutt er í leikskóla og skóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á [email protected]


Sækja söluyfirlit hér.

Nánari lýsing: 
Neðri hæð: Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt, parket á gólfi og útgengi á stórar suður svalir.
Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu og miklu skápaplássi, eldunareyja og vönduð tæki, steinn á borðum og parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með góðri innréttingu og flísum á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting og speglaskápur, upphengt salerni, stór flísalögð sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Efri hæð: Opið rými á pallinum þegar komið er upp stigann er rúmgott. 
Sjónvarpsstofa er á pallinum en hægt er að loka af og breyta í fimmta svefnherbergið, geymslurými er undir súð.
Svefnherbergi eru tvö bæði rúmgóð með þakgluggum og geymslurými undir súð, parket á gólfum.
Baðherbergi er á hæðinni flísalagt í hólf og gólf, flísalagður sturtuklefi með glerskilrúmi, hvít innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn.
Sameign, samþykkt hefur verið að skipta um teppi og mála stigahús, hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Bílskúr er með millilofti og rafmagns hurðaopnara.
Lóð er gróin og snyrtileg og húsið lítur vel út að utan.
Mjög falleg, mikið endurnýjuð og vel skipulögð íbúð ásamt bílskúr á vinsælum stað í Selásnum.

​​​​Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða  1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone