Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Vista
raðhús

Móstekkur 80

800 Selfoss

74.900.000 kr.

649.047 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2538123

Fasteignamat

47.700.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
115,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Huggulega og vel skipulagða íbúð í raðhúsalengju skammt frá Stekkjarskóla.
Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri báruklæðningu og álkasettum í bland, þak er kraftsperruþak klætt með lituðu járni.
Íbúðin er alls 115,4m2 að stærð og að innan skiptist hún í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Eignin afhendist fullbúin eins og segir hér að neðan
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Þvottahús flísalagt, með innréttingu fyrir tæki í vinnuhæð.
Baðherbergi, flísalagt bæði gólf og hluti veggja, snyrtileg innrétting með handlaug og gólfsturta.
Herbergin eru 3 með harðparketi á gólfi, fataskápar í þeim öllum.
Stofa og eldhús í opnu parketlögðu rými, stór innrétting með eyju og innbyggðum tækjum er í eldhúsi. Í stofu er hurð út á baklóð. 
Lóðin skilast grófjöfnuð og mulningur er í innkeyrslu.


Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
[email protected] eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone