Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
53 m²
svg
0 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna á einkasölu. Hagi Breiðavík lóð 18. Sumarhús byggt 1990, 53 fm. Hitaveita.
Heillandi og skjólsælt svæði við Eystra Gíslholtsvatn. Falin perla.


Eignarlóð 1200 fm í kringum húsið með töluverðum trjágróðri og stórri grasflöt en mikil sameign er í eigu sumarhúsafélagsins alls 4.000 fm með sameiginlegu leiksvæði og sparkvelli, göngustígum og gróðursvæðum. Búið er að útbúa litla höfn þar sem gott er að koma bátum út á vatniðSilungsveiði er í Eystra Gíslholtsvatni.  Veiðiréttur í vatninu. Bátur í eigu seljanda fylgir með.
Um 85 km akstur er frá Reykjavík.

Húsið stendur á timburstaurum og er mjög upprunalegt. Ný máluð timburklæðning og sólpallur, Kominn tími á á mála þakið. Sameiginleg rotþró fyrir hverfið. Hitaveita frá Veitum og heitur pottur á sólpalli.
Geymsla undir sólpalli. Geymsluhús á lóð.

Innra skipulag: Forstofa, eldhús og stofa í opnu rými, upptekin loft, hurð út á sólpall. Upprunaleg furu eldhúsinnrétting.
Tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu. Svefnloft yfir herbergja hluta hússins. Geymsla/inntök við hlið útidyrahurðar. (ekki í skráðum fm hússins)
Allt innbú fyrir utan persónulega muni fylgir.

 Eignin er í skipulögðu sumarhúsahverfi sem telur 24 lóðir í Holta og landsveit í Rangárþingi ytra.  Svæðið er afgirt með læstu hliði sem er nýtt (símahlið).
Greitt er mánaðargjald til landeigendafélagsins og vel er hugsað um svæðið.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, [email protected] s. 8648090
Bókið skoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.







 

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum