Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2006
135,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Bílskúr
Opið hús: 2. júní 2026
kl. 16:15
til 17:00
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Skálatún 16 - Falleg 3-4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð og með innbyggðum bílskúr í Naustahverfi - stærð 135,1 m²
* Góð suður verönd með timbur skjólveggjum.
* Eldhús var endurnýjað í lok árs 2025
* Aukin lofthæð í eldhúsi og stofu.
* Pljed stýring á ljósum í eldhúsi, stofu, baðherbergi, holi og öðru svefnherberginu.
* Vinsæl staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, hol, tvö svefnherbergi, geymslu sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum spónlögðum eikar fataskáp. Innangengt er í bílskúrinn í gegnum forstofuna.
Eldhús var endurnýjað í lok árs 2025. Falleg ljós innrétting frá HTH með marmaralitaðri bekkplötu. Vönduð AEG tæki. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa eldhús og hol eru í alrými þar sem flísar eru á gólfum. Í stofu og eldhúsi eru aukin lofthæð og stórir suður gluggar. Úr eldhúsi er gengið út á steypta verönd.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með flísum á gólfum og spónlögðum eikar fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,7 og 14,9 m².
Geymsla er með flísum á gólfi og opnanlegum þakgluggar. Geymslan er skv. teikningum 6,0 m² að stærð og hefur verið nýtt sem þriðja svefnherbergið.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu. Innrétting er inn á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara og lagnir fyrir baðkar.
Bílskúr er skráður skv. teikningum 24,5 m² að stærð og þar eru flísar á gólfi, bekkur með skolvaska og hillur. Sér gönguhurð er við hliðina á innkeyrsluhurðinni.
Fyrir framan er steypt bílaplan með hitalögnum í, ótengdar.
Annað
- Á baklóðinni er steypt afgirt verönd.
- Allar innréttingar og fataskápar fyrir utan í eldhúsi er spónlagt með eik.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. apr. 2025
80.450.000 kr.
86.000.000 kr.
10102 m²
8.513 kr.
5. júl. 2018
41.400.000 kr.
53.100.000 kr.
135.1 m²
393.042 kr.
30. jún. 2006
2.350.000 kr.
20.940.000 kr.
10102 m²
2.073 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026