Lýsing
**Eignin getur afhenst fljótt**
Bókið skoðun hjá Böðvari Reynissyni löggiltum fasteignasala í síma 766-8484, netfang: [email protected]
Eignin skiptist í forstofu, alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, 2x svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu í sameign.
Forstofa er opin inn að alrými, flísar á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi I er á vinstri hönd frá forstofu, rúmgott og bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Alrými sem samanstendur af stofu, eldhúsi og borðstofu er rúmgott og bjart með parketi á gólfi, stórum og góðum útsýnisgluggum og gengt út á rúmgóðar svalir.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggðum ofni, helluborði og gufugleypi og tengi fyrir uppþvottavél. Raftenglar eru í vegg á milli innréttinga.
Svefnherbergi II / Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskáp yfir innréttingu. Raftenglar á milli efri og neðri skápa. Tengi er fyrir þvottavél, og sturturýmið er flísalagt í hólf og gólf.
Sérgeymsla er í kjallara 5,6m²
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Upplýsingar úr eignaskiptayfirlýsingu eignarinnar:
Eign 0302
Edenmörk 5, 3.hæð
Fasteignanúmer F2514051
Eignin er íbúð á 3.hæð hússins 03.02
birt stærð 74,4m² auk geymslu í kjallara 00.09 5,6m² ásamt svölum 03.06 12,9m².
Þá tilheyrir eigninni hlutdeild í sameign allra samkvæmt hlutfallstölu hennar í mhl.01.
Birt stærð séreignar er 80,0m², og brúttó rúmmál 303,0m³
Hlutfallstala í mhl.01 og lóð er 13,50%
Hlutfallstala í hitakostnaði er 13,20%
Matshluti 01. Gerð húss og skipting.
Húsið er þriggja hæða fjölbýli og telst til matshluta 01 á lóð. Í húsinu er níu íbúðir, þrjár á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með málm- og timburklæðningu. Íbuðir 1.hæðar eru með sérafnotareiti eins og merktir eru á teikningum. Lyfta er í húsinu sem tengir kjallar og hæðirnar þrjár. Birt flatarmál hússins er 720,0m² og brúttórúmmál þess er 2.546,7m³ með botnplötu. Sameign allra í matshluta 01 İ sameign allra í kjallarra eru tæknirými (rými 00.10), gangar (rými 00.11), hjóla- og vagnageymsla (rými 00.11), brunastúka (rými 00.12), lyfta (rými 00.13), tæknirými (rými 00.14) og útitröppur (rými 00.15). Á 1.hæð eru lyfta (rými 01.04), og skyggni (rými 0105). Á 2.hæð eru lyfta (rými 02.04), og gangnasvalir/útitröppur (rými 02.08). A 3.hæð eru lyfta (rými 03.04), og gangnasvalir/útitröppur (rými 03.08).
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.