Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
lóð

Kringla 2

805 Selfoss

240.000.000 kr.

478 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2206912

Fasteignamat

202.353.000 kr.

Brunabótamat

328.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
501822,7 m²
svg
9 herb.
svg
4 baðherb.
svg
8 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Aukaíbúð

Lýsing

Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna jörðina Kringlu 2, 805 Selfossi.
Virkilega vel staðsett og falleg jörð við Sólheimaveg í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Um er að ræða jörð með íbúðarhúsi, hesthúsi/vélaskemmu, geymslu- og gestahúsum og miklum möguleikum til búsetu, hestamennsku, rekstrar eða frekari uppbyggingar, t.d. tengdri ferðaþjónustu.
Seljendur skoða uppítöku á fasteign á höfuðborgarsvæðinu.


Samkvæmt fasteignayfirliti er heildarstærð mannvirkja 802,8 fm. Þar af er skráð íbúðarhús 156,5 fm, auk 65 fm geymslu (kjallararými) og 65 fm bílskúrs (sem er í dag nýtt sem anddyri, gestasalerni með sturtu, þvottahús, skrifstofa og fönduraðstaða).
Hesthús/vélageymsla er 466,2 fm.

Landstærð er um 35 hektarar, auk veiðihlunninda og jarðhita.

Eignin stendur á fallegum stað með víðáttumiklu útsýni yfir sveitina og fjöllin. Staðsetningin býður upp á rólegt og heillandi sveitalíf á sama tíma og stutt er í þjónustu og uppbyggingu á svæðinu.

Nánari lýsing;
Íbúðarhúsið er mjög rúmgott og hefur tekið breytingum að innan frá teikningum. Tvö herbergi hafa verið sameinuð og breytt í rúmgóða borðstofu inn af eldhúsi sem skapar opnara og bjartara rými. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Í húsinu eru tvö baðherbergi með sturtu, þar af hefur stærra baðherbergið verið endurnýjað. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðarhúsinu. Þá er möguleiki á að skipta íbúðarhúsinu upp í tvær íbúðir en í bílskúrshluta er gott þvottahús, skrifstofa, baðherbergi með sturtu ásamt stóru opnu rými.
Húsið er klætt með hvítri báruklæðningu með timbri undir gluggum. Eldhús hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt og þak hússins hefur nýlega verið málað. Á lóðinni er einnig 13,5 fm gróðurhús á steyptu plani með gólfhita, sem býður upp á góða ræktunarmöguleika.
Hesthús og stór vélaskemma eru á jörðinni og henta vel fyrir hestamennsku, geymslu, verkstæði eða annan tengdan rekstur. Samkvæmt fasteignaskrá er hesthús/vélageymsla samtals 466,2 fm, sem skiptist í u.þ.b. 300 fm vélaskemmu og 166 fm hesthús, auk gryfju sem er um 20 fm.  Hugguleg kaffistofa og salerni er í vélageymslunni.

Með eigninni fylgja jafnframt tvö nýleg gestahús á sér lóð og eru þau í skammtímaleigu (fastanúmer 2530890), lóðin eru tæpir 1,8 hektari.

Þá fylgir einnig íbúðarlóðin Kringlugil 1 (fastanúmer 2522318), sem er tæpir 2,9 hektarar.

Jörðinni fylgja verðmæt hlunnindi, þar á meðal veiðiréttindi í Brúará fyrir lax- og silungsveiði, en starfandi er veiðifélag um ána.
Einnig fylgir jarðhiti með um 1 lítra á sekúndu af heitu vatni.

Í næsta nágrenni hefur verið mikil uppbygging og þjónusta farið vaxandi. Á Borg er meðal annars sundlaug, íþróttahús, líkamsrækt, skóli, leikskóli og skrifstofur sveitarfélagsins, auk þess sem uppbygging er hafin á aðstöðu fyrir björgunarsveit og slökkvilið. Akstur þangað er um 10 mínútur.

Hægt er að kaupa til viðbótar: Kringlugil 2 (íbúðarlóð), Vaðstígur 1 (íbúðalóð) og Árvegsbotnar (sumarhúsalóðir, nánar tiltekið 42, 44, 46, 48, 50, 52 og 54)

Þetta er frábært tækifæri til að eignast jörð á eftirsóttum stað, þar sem sameinast búsetugæði, rekstrarmöguleikar, aðstaða fyrir dýrahald og stórkostlegt umhverfi.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 / [email protected]
 

img
Elka Guðmundsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. des. 2018
72.992.000 kr.
88.000.000 kr.
0 m²
-
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ