Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Tryggvi Guðmundsson
Guðmundur Óli Tryggvason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1995
svg
190,3 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is  - kynnir til sölu - Arnarflöt 7 Súðavík - Í húsinu eru tvær íbúðir, á jarðhæð er uppgerð falleg fjögurra herbergja íbúð skráð 95,7 fm að stærð.
Á efri hæð er góð þriggja herbergja 80,6 fm íbúð. ATH - Hægt er að kaupa húsið í allt í einu lagi en einnig er möguleiki á að kaupa aðra hvora íbúðina sér. 

Arnarflötin er staðsett á góðum stað í fjölskylduvænu og vaxandi samfélagi í Súðavík, í aðeins um 20 mínútna akstri frá Ísafirði.
Kyrrlátt og fallegt umhverfi og nálægð við einstaka náttúru Vestfjarða.


Nánari lýsing:
Íbúð 0101 fnr. 222-5105, skráð stærð 95,7 fm:

Komið inn í íbúð jarðhæð, þar er björt og opin stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, útgengt út á steypta verönd.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, helluborð og ofn, ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Inn af eldhúsi er geymsla með hillum, sér útgangur þar sem er mest notaður af íbúum í dag. 
Gangur með harðparketi, stór fataskápur á gangi, útgangur við enda gangs sunnan megin út á góðan og skjólríkan sólpall.
Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Í hjónaherbergi er stór fataskápur.
Baðherbergi endurnýjað, góð aðgengileg sturta, flísar á gólfi og vegg við sturtu, handklæðaofn, innrétting og vaskur, einnig er þar þvottaaðstaða, vinnuborð og efri skápar.

Íbúð 0201 Fnr. 222-5106, skráð stærð 80,6 fm.
Þriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi.
Forstofugangur með fataskáp.
Stofa er rúmgóð og björt, stórir gluggar, útgengt á svalir.
Eldhús með ljósri innréttingu, helluborð, ofn og vifta, tengi fyrir uppþvottavél.
Inn af eldhúsi er þvottahús/geymsla.
Gangur með fataskáp, suðursvalir við enda gangs.
Tvö svefnherbergi, skápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi, baðkar og  sturtuklefi, innrétting og handklæðaofn.
Linoleum dúkur á öllum gólfum.

Í sameign er forstofugangur og stigi á milli hæða, hjóla/vagnageymsla undir stiga, sameign skráð stærð 14 fm.
Framkvæmdasaga eigenda: Neðri hæð: Eldhús, baðherbergi, fataskápurog gólfefni endurnýjað 2021-2022. Sólpallur 2025.
Efri hæð, nýr vaskur/vaskaskápur og sturtuklefi 2021.


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. sep. 2021
10.900.000 kr.
25.000.000 kr.
176.3 m²
141.804 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone