Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
fjölbýlishús

Hafnarbraut 11

200 Kópavogur

75.900.000 kr.

803.175 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2278397

Fasteignamat

68.850.000 kr.

Brunabótamat

50.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
94,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. ( 774-1477 / [email protected] ) kynna: 
Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á tveimur hæðum í góðu lyftuhúsi við Hafnarbraut 11 á Kársnesi.
Það sem gerir þessa eign sérstaklega áhugaverða er tveggja hæða skipulagið sem skapar skemmtilega rýmisupplifun og veitir eigninni meiri sérstöðu en algengt er í fjölbýlishúsum. Hæðaskiptingin gefur eigninni að mörgu leyti yfirbragð raðhúss eða "townhouse" þar sem svefnrými og alrými njóta sín hvort á sinni hæð. Hafnarbraut 11, sem var upprunalega byggt 1988 en endurbyggt og endurgert 2020, stendur á einum eftirsóttasta stað Kársnessins þar sem stutt er niður að strandlengjunni, göngu- og hjólaleiðum og fjölbreyttum útivistarsvæðum. Hér nýtur þú nálægðar við sjóinn, fallegrar náttúru og um leið stutt í alla helstu þjónustu. 

* Tveggja hæða skipulag sem skapar einstaka rýmisupplifun
* Fallegt útsýni til sjávar og fjalla til vesturs
* Vandaðar HTH innréttingar og skápar
* Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi
* Svalir með útgengi úr svefnherbergi
* Aðgangur að bílastæði í bílageymslu
* Skjólgóður sameiginlegur garður með leiktækjum og grillaðstöðu
* Frábær staðsetning við sjávarsíðuna á Kársnesi

** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að óska eftir SÖLUYFIRLITI og EIGNAMÖPPU **


Eignin er samtals 94,5 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og samanstendur af forstofu, stofu, borðstofu og eldhúsi, 2 góðum svefnherbergjum, baðherbergi, fataherbergi og geymslu innan íbúðar auk sérgeymslu í sameign.

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **

Nánari lýsing
NEÐRI HÆÐ:
Forstofa - 
Rúmgóð og björt forstofa með góðum fataskáp og nytsamlegu geymslurými undir stiga.
Eldhús - Falleg og vönduð HTH innrétting með góðu vinnuplássi, lýsingu undir efri skápum og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgja með eigninni.
Stofa og borðstofa - Bjart og opið alrými þar sem stofa og borðstofa mynda samfellda heild. Stórir gluggar til vesturs hleypa inn ríkulegri birtu og bjóða upp á fallegt útsýni yfir sjó og fjöll.
Baðherbergi - Flísalagt baðherbergi með sturtu, snyrtilegri innréttingu, handklæðaofni og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
EFRI HÆÐ:
Hjónaherbergi - Mjög rúmgott og bjart herbergi með fataherbergi og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi - Rúmgott herbergi með góðum skáp og útgengi út á svalir.
Geymsla - Lítið geymsluherbergi á efri hæð með góðu skápaplássi. Sérgeymsla í sameign ásamt rúmgóðri sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Umhverfið
Kársnesið hefur á síðustu árum þróast í eitt eftirsóttasta íbúðasvæði höfuðborgarsvæðisins þar sem nútímaleg uppbygging, nálægð við sjóinn og fjölbreytt útivist fara saman. Frá eigninni er stutt í strandstíga, leiksvæði, skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu. Vinsælt bakarí og veitingastaður eru í aðliggjandi húsum á jarðhæð. Göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram ströndinni. Undirbúningur er hafin fyrir byggingu Fossvogsbrúar sem er partur af fyrirhugaðri Borgarlínu og mun hún tengja svæðið við miðborg Reykjavíkur og restina af Kársnesi og Kópavogi - sjá nánar HÉR.

Hér er um að ræða einstaklega vel skipulagða og fallega tveggja hæða íbúð með útsýni til sjávar og fjalla á einum besta stað Kársnessins. Eign sem sameinar nútímalegan frágang, vandaðar innréttingar, einstakt skipulag og eftirsótta staðsetningu við sjávarsíðuna. Fullkominn kostur fyrir þá sem vilja njóta þæginda borgarlífsins án þess að fórna nálægð við náttúru og útivist.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk löggiltur fasteignasali í 774-1477 og/ eða á [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref. 
s. 774-1477 / [email protected]

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. des. 2020
43.750.000 kr.
54.900.000 kr.
142.7 m²
384.723 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone