Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 139,8 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Klapparhlíð 38 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 139,8 m2, þar af raðhús 106,0 m2 og bílskúr 33,8 m2. Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Innangengt er í rúmgóðan bílskúr úr forstofu. Gott skipulag, góð lofhæð og gólfhiti er í húsinu. Afgirt timburverönd og garður til suðurs. Timburverönd með heitum potti. Í garði eru tveir geymsluskúrar. Um er að ræða spennandi eign á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð, golfvöll og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofa er opin við eldhús með parketi á gólfi. Útgengt er á afgirta timburverönd til suðurs með heitum potti. Rafdrifin gluggatjöld.
Eldhús er með parketi á gólfi, eldhúseyju með helluborði og innréttingu með ofni og vaski. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Steinn á borðum.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi. Rafdrifin gluggatjöld.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni, 'walk-in' sturtu og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborði með skolvaski, skápum og þvottasnúru. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Bílskúr er rúmgóður, skráður 33,8 m2 og er með flísum á gólfi. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari. Útgengt er á timburverönd úr bílskúr.
Geymsluskúrar eru tveir á lóðinni.
Bílaplan fyrir framan hús er malbikað og rúmgott. Timburverönd og garður snúa í suður. Góð skjólgirðing er umhverfis garðinn með lýsingu.
Verð kr. 129.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.