Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
266,9 m²
svg
9 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús á Selbraut 2, Seltjarnarnesi, byggt 1979 og endurhannað af innanhússarkitekt Valgerði Sveinsdóttur árið 2005. Eignin er 266,9 m² að stærð og skiptist í tvær hæðir auk bílskúrs og garðskála.

- Skoðaðu eignina í 3D hér (með og án húsgagna)
- Fasteignamat 2027 - 205.500.000 kr.
- Falleg arinstofa
- 70 m² þaksvalir
- Tvöfaldur bílskúr og næg bílastæði
- Eign sem vandað hefur verið við endurbætur

Viðhald: 
Við endurnýjunina var húsið tekið í gegn frá grunni, allar innréttingar endurnýjaðar, baðherbergi uppfærð, loft endurgerð, vatns- og raflagnir endurnýjaðar, gólfhiti lagður á neðri hæð og miðstöðvarlagnir endurnýjaðar á efri hæð. Stigi var einnig færður og endurgerður, sem gefur eigninni nútímalegt og opið yfirbragð. Garðskáli endurnýjaður 2007. Bílskúrshurðir endurnýjaðar fyrir 10 árum. Þakpappi bræddur ca 2007.


Húsið býður upp á afar björt og rúmgóð alrými með mikilli lofthæð. Efri hæðin hýsir svefnherbergin og annað baðherbergi, ásamt opnu sjónvarpsholi. Alls eru 2 baðherbergi og 4 svefnherbergi, en hægt að hafa svefnherbergin 6 með lítilli fyrirhöfn, sem gerir húsið tilvalið fyrir stórar fjölskyldur eða þær sem þurfa mikið rými. Staðsetningin á Seltjarnarnesi er eftirsótt, róleg og fjölskylduvæn, með stuttri leið í alla helstu þjónustu.

Neðri hæð
Aðalhæð eignarinnar þar sem finna má björt og opin alrými, eitt svefnherbergi við anddyrið og sjónvarpsherbergi sem hægt er að breyta í svefnherbergi. Garðskáli og bílskúr. 
Anddyri: Flísar á gólfi og innbyggðir skápar og hirslur.
Eldhús: Nútímaleg innrétting í ljósum við og hvítum tónum með góðu vinnuplássi og innbyggðum tækjum. Morgunverðaraðstaða við enda eldhús. Ljóst parket á gólfi og opið flæði inn í borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð og björt með ljósu parketi á gólfi, mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu. Tengist eldhúsi og stofum í opnu rými.
Tvær samliggjandi stofur;  aðalstofa og lægri sjónvarpsstofa með arni. Bjartar og rúmgóðar með ljósu parketi og stórum gluggum.
Svefnherbergi I: Eitt svefnherbergi á neðri hæð með parketi á gólfi og góðum hirslum.
Sjónvarpshol/skrifstofa/auka herbergi: er milli borðstofu og garðskála. 
Gestasalerni/Baðherbergi: Nútímalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, sturtu og stílhreinni innréttingu úr ljósum við.
Þvottahús: Vel útbúið þvottahús með hvítri innréttingu, vinnuborði og rými fyrir þvottavél og þurrkara, auk góðrar geymslu. Flísar á gólfi.
Garðskáli: Endurnýjaður árið 2007, bjartur og notalegur, með flísum á gólfi og útgengi á timburpall.

Bílskúr: Rúmgóður tvöfaldur bílskúr með nýlegum bílskúrshurðum frá Héðni (fyrir um 10 árum).

Efri hæð
Svefnálma eignarinnar með 3-4 svefnherbergjum (stóra var 2 herbergi), baðherbergi og opnu sjónvarpsholi.
Opið hol/Sjónvarpshol: 
Bjart og rúmgott rými með mikilli lofthæð og ljósu parketi á gólfi, hentar vel sem sjónvarpshol eða leshorn.
Svalir - frá holinu er gengi út á 70 m² þaksvalir sem bjóða upp á marga nýtingarmöguleika.
Hjónaherbergi (herbergi II): Stórt og bjart hjónaherbergi með ljósu parketi á gólfi og rennihurðaskápum.
Svefnherbergi III og IV.  bæði með ljósu parketi á gólfi og góðum hirslum. Hentug sem barnaherbergi eða skrifstofur.
Baðherbergi II: Glæsilegt, nútímalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórum sturtuklefa, upphengdu salerni og stílhreinni innréttingu úr ljósum við.

Garður og umhverfi
Verönd/Pallur: Sér timburpallur með skjólveggjum, sem býður upp á notalega útiveru. Tengist beint út úr garðskála og frá borðstofu
Aðkoma og bílastæði: Góð aðkoma að húsinu með nægum bílastæðum og rúmgóðum tvöföldumbílskúr.

Staðsetning: Eignin er staðsett á rólegri og eftirsóttri Selbraut á Seltjarnarnesi, vel þekkt fyrir fjölskylduvænt umhverfi og nálægð við skóla, íþróttasvæði og útivistarmöguleika.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]

img
Brynjar Ingólfsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
RE/MAX
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjar Ingólfsson

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jún. 2025
171.100.000 kr.
110.000.000 kr.
10101 m²
10.890 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone

Brynjar Ingólfsson

Skeifunni 17, 108 Reykjavík