Opið hús: Garðatorg 4, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 08. Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Stórglæsileg og afar vel skipulögð 3ja herbergja LÚXUS íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi á einum eftirsóttasta stað í miðbæ Garðabæjar.
Íbúðin er einstaklega björt og rúmgóð með opnu og samfelldu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda notalega heild. Innan eignar eru tvö góð og björt svefnherbergi, tvö baðherbergi og vel skipulagt þvottaherbergi.
Frá íbúðinni eru tvennar svalir sem bjóða upp á ólíka upplifun. Aðrar snúa að Garðatorgi þar sem verslun, þjónusta og mannlíf setja svip sinn á umhverfið, en hinar snúa í rólegra umhverfi með fallegu útsýni í átt til sjávar.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt flatarmál eignarinnar 116,0 fm, þar af er íbúðin 107,2 fm og sérgeymsla í kjallara 8,8 fm. Svalir eru annars vegar 8,7 fm og hins vegar 5,8 fm. Eigninni fylgir jafnframt sérmerkt stæði í bílageymslu.
Á Garðatorgi er fjölbreytt þjónustuframboð í göngufæri, þar á meðal verslanir, veitingastaðir, kaffihús, bókasafn, snyrti- og hárgreiðslustofur auk annarrar þjónustu sem gerir staðsetninguna einstaklega þægilega og eftirsóknarverða. Hér er sjón sannarlega sögu ríkari.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.